SAGA KRAFTLYFTINGA!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Fréttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 
 

Jón Páll Sigmarsson var þetta árið kjörinn Íþróttamaður ársins.

1982.
Norðurlandameistaramótið var haldið í Finnlandi. Þrír kepptu frá Íslandi. Kári Elíson, Halldór Eyþórsson og Sverrir Hjaltason. Kári lyfti í 67.5kg fl og fékk silfur með 615kg, Halldór keppti í 75kg fl. og fékk brons með 572.5kg. Sverrir keppti í 90kg fl og náði þriðja sæti með 735kg.
Í aprílmánuði var haldið sjónvarpsmót. Þar lyfti Jón Páll Sigmarsson 937.5kg.
Íslandsmeistaramótið var að þessu sinni haldið á Akureyri og kepptu 28. Skúli Óskarsson keppti þarna í 82.5kg flokki og var þetta síðasta mót hans. Árangur hans var þessi: 310 145 320 775kg.
Í víkingakeppninni Í Svíþjóð bætti Jón Páll samanlagða árangurinn í 125kg fl upp í 952.5kg.
Jóhannes Hjálmarsson, Akureyri verður HM meistari í öldungaflokki.

1983.
Heimsmeistaramótið fór fram í Gautaborg, Svíþjóð. Kári Elíson og Flosi Jónsson kepptu.
Á árinu voru stofnaðar tvær nefndir innan Lyftingasambandsins. Ein til að sinna lyftingum og hin til að sinna kraftlyftingum. Var þetta fyrsti vísirinn að því sem óhjákvæmilega hlaut að gerast, að stofnuð yrðu tvö sérsambönd, eins og víðast er erlendis.

1984.
Á þessu ári var í fyrsta sinn haldið unglingamót. Kom þar fram nýr maður, sem vann óvænt stigakeppni. Var það Hjalti Árnason með 782.5kg í samanlögðu í 125kg flokki.
Evrópumeistaramótið fór nú fram í Noregi og kepptu þar Kári Elíson og Hjalti Árnason. Kári fékk silfurverðlaun í 67.5kg flokki og lyfti 622.5kg. Hjalti féll úr keppni í þyngsta flokki.
Um sumarið var haldin landskeppni milli Íslands og Skotlands í borginni Paisley. Skotar unnu naumlega. Jón Páll bætti samanlagða metið í 125kg flokki upp í 955kg. Tveir Íslendingar lyftu yfir 800kg samanlagt. Hörður Magnússon lyfti 820kg í 100kg flokki. og Hjalti Árnason 822.5kg í +125kg flokki.
Á sjónvarpsmóti 1. desember náði Jón Páll Sigmarsson besta árangri Íslending í samanlögðu, er hann lyfti 970kg í 125kg flokki.

1985.
Þann 28. febrúar var haldinn fundur í stjórn Lyftingasambands Íslands og samþykkt þar tillaga kraftlyftingamanna um lausn þeirra frá samstarfi við lyftingamenn innan Lyftingasambandsins. Samþykkt var að afsala til kraftlyftingamanna aðildum að öllum alþjóðlegu kraftlyftingasamböndunum. Stjórn ÍSÍ brást illa við þessu og fundaði við LSÍ, en málþófinu lauk á endanum með því að ÍSÍ lagði til lagabreytingar hjá LSÍ. Stóð um þetta mál mikil og löng deila og ekki síst eftir 2. mars 1985, þegar kraftlyftingamenn stofnuðu eigið sérsamband utan við ÍSÍ. Sambandið átti eftir að sanna sig og hefur það með tímanum skipað sér í fastan sess innan íslenskrar íþróttahreyfingar.
Á þessu ári fór fram fyrsta Íslandsmót kvenna og kepptu þar 10 konur. Á meistaramóti karla voru 24 keppendur. Jón Páll með 917.5kg, Hörður Magnússon var með 820kg í 110kg fl , Víkingur Traustason með 860kg í 125 kg fl. og Hjalti Árnason með 857.5kg í sama flokki.

 

 



 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is