Á árinu var í fyrsta sinn keppt í
sveitakeppni milli bæjarfélaga. Reykjavík
vann, svo Akureyri og í þriðja sæti
Kópavogur.
Fyrsta Íslandsmótið í bekkpressu
var haldið áárinu. Keppendur voru 14.
Hið nýstofnaða Kraftlyftingasamband, KRAFT
hélt fyrstu keppnina “Sterkasti maður Íslands”.
Mótið vakti mikla athygli og varð Jón
Páll Sigmarsson sigurvegari, en hann hafði fyrr
á árinu unnið keppnina “Sterkasti
maður heims.”
Norðurlandamótið var haldið í Þrándheimi.
Þar kepptu Kári Elíson og Víkingur
Traustason. Báðir urðu NM meistarar. Kári
í 67.5kg flokki með 637.5kg og Víkingur
með 850kg í 125kg. fl.
Norðurlandamót unglinga var haldið í
Finnlandi. Ísland átti keppendur í þremur
þyngstu flokkunum og fengu tvö gull og eitt silfur.
Torfi Ólafsson vann +125kg flokk með 810kg, Hjalti
Árnason vann 125kg flokk með 780kg og Matthías
Eggertsson fékk brons í 110kg flokki með
635kg.
Evrópumótið fór að þessu
sinni fram í Hollandi. Kepptu þar Kári
Elíson og Víkingur Traustason. Kári fékk
silfur í 67.5kg flokki með 652.5kg. og Víkingur
varð í 5. sæti með 805kg.
Unglingalandsliðið fór fullskipað á
HM unglinga í Þýskalandi. Magnús
Ver Magnússon fékk bronsverðlaun í
110kg fl. með 657,5kg, Hjalti Árnason fékk
silfur í 125kg flokki með 735kg og Torfi Ólafsson
varð Heimsmeistari í +125kg flokki með 807.5kg.
Ísland varð í þriðja sæti
í stigakeppni þjóða.
Heimsmeistaramót karla var haldið í Espoo
í Finnlandi. Þar kepptu Kári Elíson
og Víkingur Traustason. Kári fékk silfurverðlaun
í 67.5kg flokki og lyfti 660kg. en Víkingur
féll úr keppni.
1986.
Í febrúar fór landslið Íslands
alla leið til Californíu til að etja kappi
við landslið ríkisins og var þetta mót
haldið samhliða meistaramóti Californíu.
Var þetta í borginni Fresno, skammt norðan
við LA. Bandaríkjamennirnir mörðu sigur
með 96 stig gegn 93, en tveir féllu úr keppni
af íslenska liðinu. Baldur Borgþórsson,
Víkingur Traustason, Torfi Ólafsson og Hjalti
Árnason sigruðu í sínum flokkum.
Torfi lyfti 912.5kg í samanlögðu.
Meistaramót Íslands fór að þessu
sinni fram á Akureyri. Keppendur voru 31. Fjórir
keppendur lyftu yfir 800kg í samanlögðu. Hörður
Magnússon í 110kg flokki með 855kg, Í
125kg flokki Víkingur Traustason með 872.5kg og
Hjalti Árnason með 865kg og síðan Torfi
Ólafsson með 880kg í +125kg flokki..
Þann 6. desember var haldið sjónvarpsmót
og keppti þar Fred Hatfield frá USA. Tveir Íslendingar
lyftu yfir 900kg í samanlögðu, þeir
Torfi Ólafsson 910kg og Hjalti Árnason 900kg
og að Jóni Páli meðtöldum eru þá
þrír Íslendingar komnir í 900kg
flokkinn. Hjalti Árnason bætti svo árangur
sinn á opna Reykjavíkurmeistaramótinu
27. desember, er hann lyfti 930kg í +125kg flokki.
Á þessu sama móti komst Magnús
Ver Magnússon vel yfir 800kg í 125kg flokki
og lyfti samtals 825kg.
Evrópumeistaramótið fór nú
fram í Svíþjóð. Þar keppti
Kári Elíson í 67.5kg flokki og varð
þriðji með 640kg.
Á Evrópumeistaramót unglinga fóru
Snæbjörn Aðils, Magnús Ver Magnússon
og Matthías Eggertsson. Snæbjörn varð
í þriðja sæti í 90kg flokki
með 617.5kg. Magnús Ver varð í þriðja
sæti í 110kg flokki með 737.5kg og Matthías
Eggertsson í 5. sæti í 125kfg flokki með
680kg.
Á Heimsmeistaramót unglinga fór Torfi
Ólafsson. Mótið fór að þessu
sinni fram í Cochin í Indlandi, sem er mjög
sunnarlega. Torfi keppti í +125kg flokki og varð
meistari með 790kg. Tveir keppendur lyftu meira en hann
í samanlögðu.
|