Gunnar Steingrímsson keppti í 90kg flokki
og varð í 5. sæti. með 810kg. Hann lyfti
330kg í réttstöðulyftu og vann þá
grein og meðal annars meistarann Vince Anello. Þessu
ætluðu mótshaldarar ekki að trúa.
Óskar Sigurpálsson varð í 5. sæti
í 110kg fl. með 815kg. og Arthúr Bogason
í 6. sæti með 822.5kg.
1980.
Yfir 20 keppendur voru á meistaramótinu og tveir
með yfir 800kg. Arthúr Bogason með 812.5 og
Jón Páll Sigmarsson með 810kg.
Í aprílmánuði var Skúla Óskarssyni
boðið á World Cup, sem haldið var í
London, en einungis úrvalsmönnum var boðið.
NBC sjónvarpsstöðin bandaríska tók
upp mótið og m.a. var haft viðtal við Skúla.
Skúli fékk silfur með 720kg, en sigurvegarinn
lyfti 732.5kg.
Í maímánuði fóru þrír
keppendur á Evrópumeistaramót í
Zurich í Sviss. Skúli Óskarsson keppti
i 75kg flokki og lyfti 715kg og fékk silfur. Sverrir
Hjaltason keppti í 82.45kg flokki og varð í
5. sæti með 742.5kg. og Jón Páll Sigmarsson
keppti í 125kg flokki og fékk silfur með
787.5kg.
Ísland fór með fullskipað æið
á Norðurlandameistaramót í Drammen
í Noregi. Skúli Óskarsson varð NM
meistari með 715kg. Sverrir Hjaltason fékk silfur
í 82.5kg fl. með 740kg., Ólafur Sigurgeirsson
fékk brons í 90kg fl. með 655kg. og Jón
Páll Sigmarsson varð NM meistari með 845kg.
Það sem hæst bar á árinu gerðist
á NM unglinga í lyftingum 1. nóvember.
Þá lyfti Skúli Óskarsson nýju
Heimsmeti í réttstöðulyftu í
75kg flokki 315.5kg.
Skúli Óskarsson kjörinn öðru sinni
Íþróttamaður ársins.
Þetta ár keppti fyrsta konan í kraftlyftingum.
Var það Guðrún Ingólfsdóttir
með 300kg í samanlagðan árangur.
1981.
Evrópumeistaramótið var haldið í
borginni Parma á Ítalíu í maí
mánuði. Níu keppendur mættu til leiks
frá Íslandi, Kári Elíson, Halldór
Eyþórsson, Skúli Óskarsson, Sverrir
Hjaltason, Ólafur Sigurgeirsson, Viðar Sigurðsson,
Hörður Magnússon, Jón Páll Sigmarsson
og Víkingur Traustason.
Kári varð í 6. sæti í 67.5kg
fl. með 600kg, Halldór féll úr í
75kg fl. Skúli varð í 4. sæti í
82.5kg fl. með 770kg., Sverrir Hjaltason fékk brons
í 90kg flokki með 822.5kg., en Ólafur Sigurgeirsson
féll úr í sama flokk. Viðar varð
í 5. sæti í 100kg fl með 717,5kg,
Hörður í 7. sæti í 110kg fl.
með 755kg.Jón Páll fékk silfur í
125kg fl. með 852.5kg og Víkingur Traustason fékk
silfur í +125kg fl. með 800kg.
Íslandsmeistaramótið var haldið með
stæl og voru keppendur yfir 30. Tveir keppendur lyftu
yfir 800kg , Sverrir Hjaltason í 90kg flokki 820kg,
Víkingur Traustason í +125 kg flokki 810kg.
og svo var í fyrsta skipti á Íslandi
lyft yfir 900kg í samanlögðu. Var það
Jón Páll Sigmarsson í 125kg flokki með
912.5kg.
Norðurlandameistaramótið fór fram í
Svíþjóð og kepptu þar 6 Íslendingar.
Kári Elíson varð í 4. sæti
í 67.5kg fl. með 595kg. Skúli Óskarsson
varð í 2. sæti í 75kg fl. með
705kg., Hörður Magnússon varð í
4. sæti í 100kg fl. með 775kg. Guðmundur
Eyjólfsson varð í 4. sæti í
110kg fl með 700kg og Jón Páll Sigmarsson
var NM meistari í +125kg fl. með 890kg.
Heimsmeistaramótið var haldið í Calcutta
Indlandi. Skúli Óskarsson varð í
þriðja sæti í 75kg flokki með 700kg
og Jón Páll Sigmarsson einnig í 3. sæti
í 125kg flokki með 912.5kg.
HM öldunga var haldið í USA í september
þar keppti Jóhannes Hjálmarsson í
100kg fl.
|