með 810kg í 100kg flokki. Þrír
keppendur voru með yfir 900kg. Jón Gunnarsson í
100kg flokki með 960kg, Auðunn Jónsson í
125kg fl. með 950kg og Jón B. Reynisson með
920kg í +125kg fl.
Á Njarðvíkurmóti lyfti Jón
Gunnarsson 800kg í 100kg fl , Auðunn Jónsson
910kg í 125kg fl. og Jón B. Reynisson 905kg
í +125kg fl.
EM var haldið í Sotkamo, Finnlandi. Auðunn
Jónsson var þar keppandi í 125kg flokki
og varð hann Evrópumeistari með 950kg. Gunnar
Ólafsson keppti í +125kg flokki og féll
úr keppni eftir ítrekuð mistök í
hnébeygju.
HM var haldið í borginni Cherkassy í Ukraínu,
Auðunn Jónsson keppti fyrir Íslands hönd.
Hann fékk silfurverðlaun með 960kg á
eftir Rússanum Podtynni, sem lagði Auðunn að
velli á Indlandi á HM unglinga um árið.
HM öldunga í Argentínu. Þar kepptu
Flosi Jónsson og Lúðvík Björnsson.
Flosi keppti í 100kg flokki og lyfti 670kg og varð
í 9. sæti. Lúðvík keppti í
+125kg flokki yfir 50 ára og lyfti 600kg, sem dugðu
í þriðja sætið.
NM lögreglumanna var haldið í Finnlandi. Þangað
fóru Óskar Sigurpálsson og Kjartan Helgason,.
1999.
HM öldunga í Sun City Suður Afríku.
Keppendur frá KRAFT voru tveir Þórdís
Garðarsdóttir og Lúðvík Björnsson.
Þórdís varð í 6. sæti
í +67.5kg fl. með 300kg. Lúðvík
varð í 4. sæti í +125kg fl. yfir 50
ára með 615kg.
HM í kraftlyftingum í Trento, Ítalíu.
Auðunn Jónsson var eini keppendi Íslands.
Hann lyfti 100kg og varð í öðru sæti
í 125kg fl. á eftir Rússanum Podtynni,
sem lyfti 1002.5kg.
Árþúsundamótið í Örebro,
Svíþjóð, “Battle of the giants”.
Á mótið var boðið bestu kraftlyftingamönnum
Heims í þyngstu flokkunum og meðal þeirra
var Auðunn Jónsson. Úrslit réðust
á stigum og voru veitt vegleg verðlaun fyrir greinar
og stig og allt borgað fyrir keppendur. Auðunn varð
í 10 sæti með 930kg.
Á Íslandsmeistaramótinu í bekkpressu
lyfti Jón B. Reynisson 260.5kg í bekkpressu
í +125kg fl.
Á Reykjanesmóti í réttstöðulyftu
bætti Auðunn Jónsson Íslandsmetið
í 125kg fl. og lyfti 371.5kg.
Íslandsmeistaramótið var haldið í
Valsheimilinu. Keppendur voru 23. Hápunktur mótsins
var árangur Auðuns Jónssonar. Hann lyfti
í hnébeygju 405kg, í réttstöðulyftu
380kg og samanlagt 1025kg, mesta þyngd sem Íslendingur
hefur lyft. Jón B. Reynisson lyfti 262.5kg í
bekkpressu. Fjórir lyftu yfir 800kg. Í 110kg
flokki voru tveir af þeim, Svavar Már Einarsson
með 840kg og Marinó Arnórsson með 810kg.
Í 125kg flokki var Víkingur Traustason með
810kg og Vilhjálmur Hauksson með 800kg.
2000.
HM öldunga í Tékklandi. Keppendur frá
KRAFT voru Þórdís Garðarsdóttir
og Hjörtur Geirsson. Þórdís varð
í 9. sæti með 355kg. Hjörtur varð
í 11. sæti í 110kg fl. með 655kg.
HM í kraftlyftingum í borginni Akita, Japan.
Auðunn Jónsson keppti þarna í 125kg
fl og féll úr, þar sem hann fékk
byrjunarþyngdina ógilda í öllum þremur
tilraunum, sennilega hefur hann ekki gætt að stoppinu
á brjóstinu. Sigurvegari var Midote, Japan með
1000kg. Í öðru sæti var Papazov Ukraínu,
sem átti eftir að láta mikið að
sér kveða næsta ár. Fæddur árið
1980.
Íslandsmótið var haldið í íþróttahúsinu
við Strandgötu í Hafnarfirði.. Tveir keppendur
voru í kvennaflokki og 11 karlar. Bestum árangri
náði Jón Gunnarsson, en hann
|