keppti að þessu sinni í 110kg fl. Hann
lyfti 385kg í hnébeygju og 361kg í réttstöðulyftu
og samtals 970kg. Næst besta árangri náði
Auðunn Jónsson. Hann var í 125kg fl og lyfti
1012.5kg og tók m.a. 400kg í hnébeygju.
Á Bikarmóti KRAFT lyfti Víkingur Traustason
865kg í 125kg fl.
2001.
EM öldunga í bekkpressu. Á þessu
móti kepptu Þórdís Garðarsdóttir
og Lúðvík Björnsson. Þórdís
lyfti 85kg og fékk silfur, en Lúðvík
lyfti 165kg og brons.
HM í kraftlyftingum í Sotkamo, Finnlandi. Auðunn
Jónsson keppti að venju í 125kg fl. og varð
í 4. sæti með 1000kg, en sigurvegarinn var
Papazov Ukraínu með 1047.5kg, en Auðunn vann
þennan strák árið áður.
Auðunn átti góða tilraun við Heimsmet
í réttstöðulyftu 388kg
Bardagi risanna í Örebro, Svíþjóð.
Auðunn fékk boð á mótið eins
og 1999. Auðunn hafnaði í 7. sæti í
stigakeppninni með 962.5kg og 549.1 stig
Íslandsmótið í kraftlyftingum var
að þessu sinni haldið á Akureyri. Tvær
konur kepptu og 13 karlar. Jóhann Eyvindsdóttir
lyfti 405kg í 90kg fl. Þrír voru með
yfir 800kg. Jón Gunnarsson í 100kg fl. lyfti
867.5kg, Víkingur Traustason lyfti 830kg í 125kg
fl. og Grétar Hrafnsson komst í 800kg klúbbinn
og lyfti þeirri þyngd í +125kg fl.
Á Bikarmóti KRAFT lyfti Jóhanna Eyvindsdóttir
465kg í +90kg fl. Víkingur Traustason lyfti
830kg í 125kg fl. Grétar Hrafnsson lyfti 810kg
í +125kg fl. og Benedikt Magnússon í
+125kg fl komst í 800kg klúbbinn.
2002.
Íslandsmeistaramótið var haldið í
húsakynnum Bifreiða og landbúnaðarvéla
h/f að Grjóthálsi. Tvær konur kepptu
og 12 karlar. Víkingur Traustason lyfti 845kg í
125kg flokki. Benedikt Magnússon lyfti 825kg í
+125kg fl. Meistari meistaranna varð Auðunn Jónsson
í +125kg flokki og hreinsaði hann vel til á
metalistanum í þessum flokki, sem hann keppir
yfirleitt ekki í. Hann lyfti 407.5kg í hnébeygju,
262.5kg í bekkpressu og 1030kg samtals, sem er mesta
samanlagða þyngd, sem Íslendingur hefur lyft.
Ritað af Ólafi Sigurgeirssyni í maí
2002.
|