1995.
HM unglinga var í Nýju Dehli, Indlandi. Þar
kepptu Jóhannes Eiríksson í 60kg fl,
Völundur Þorbjörnsson í 110kg fl. og
Auðunn Jónsson +i 125kg fl. Jóhannes varð
í 6. sæti með 505kg. Völundur lyfti
650kg, sem dugði 7. sæti. Auðunn varð í
öðru sæti með 885kg á eftir Rússanum
Podtynny með 902.5kg. Rússi þessi átti
síðar meir eftir að koma við sögu
hjá Auðunni.
HM öldunga var haldið í Kaupmannahöfn.
Þar keppti Flosi Jónsson í 90kg flokki
og varð í 9. sæti með 635kg.
Á Íslandsmóti unglinga bættist
nýr maður í 900kg flokkinn. Var það
Auðunn Jónsson, sem lyfti þeirri þyngd
í 125kg flokki.
Meistaramótið var haldið í mars. Keppendur
voru 25 talsins. Tveir lyftu yfir 800kg. Jón Gunnarsson
var með 892.5kg í 100kg flokki og Jón B.
Reynisson með 870kg í +125kg flokki.
Á Bikarmóti KRAFT voru tveir með yfir 900kg
og einn yfir 800kg. Jón Gunnarsson lyfti 835kg í
90kg flokki, Auðunn Jónsson 930kg í 110kg
flokki og Hjalti Árnason 940kg í +125kg flokki.
HM í Pori Finnlandi var haldið í nóvember.
Þar keppti Gunnar Ólafsson í +125kg flokki.
Hann lyfti 310kg, 205kg og 300kg og samanlagt 810kg og dugði
þetta í 9 sæti.
1996.
HM var að þessu sinni haldið í Salzburg,
Austurríki. Þar kepptu Jón Gunnarsson
og Auðunn Jónsson. Jón keppti í 90kg
flokki og fékk brons með 852.5kg. Auðunn Jónsson
keppti í 110kg flokki með Ed Coan. Auðunn varð
í 4. sæti með 922.5kg., en eftir að Coan
féll á lyfjaprófi færðist Auðunn
upp og fékk bronsverðlaun.
EM lögreglumanna var í Prag í Tékklandi.
Þar kepptu Óskar Sigurpálsson og Kjartan
Helgason.
Íslandsmeistaramótið nú var það
tuttugasta og fimmta í röðinni og var haldið
með glæsibrag í maímánuði.
Keppendur voru 26 og nokkrir gestir. Einn Dani Thomas Hedeman
og nokkrir Bandaríkjamenn. Nýr maður bættist
í 900kg flokkinn, Jón Gunnarsson lyfti þeirri
þyngd í 100kg flokki. Tveir aðrir voru með
yfir 900kg. Auðunn Jónsson í 110kg fl. með
965kg og Jón B. Reynisson í +125kg fl. með
937.5kg. Hann tók einnig 402.5kg í hnébeygju.
Birgir Þorsteinsson lyfti 825kg í 125kg fl.
Á Glaumbarsmótinu í bekkpressu lyfti
Jón B. reynisson 250.5kg.
1997.
HM öldunga var haldið í Ungverjalandi. Þar
keppti Lúðvík Björnsson í +125kg
flokki yfir 50 ára. Hann varð í 6. sæti
með 537.5kg.
Á Íslandsmótinu í bekkpressu lyfti
Jón B. Reynisson 252.5kg. í +125kg fl.
Íslandsmeistaramótið var að þessu
sinni haldið á Akureyri. Keppendur voru 22. Auðunn
Jónsson var með besta árangur keppenda og
varð þriðji Íslendingurinn til að
lyfta 1000kg. Var hann í 125kg flokki. Meðal annars
lyfti hann 250kg í bekkpressu. Enginn annar lyfti yfir
800kg en sjö lyftu yfir 700kg.
Á Bikarmóti KRAFT lyfti Jón B. Reynisson
895kg og í bekkpressu 255kg.
Á Reykjanesmóti lyfti Gunnar Ólafsson
800kg í +125kg fl.
1998.
Á Íslandsmótinu í bekkpressu lyfti
Jón B. Reynisson 255.5kg.
Íslandsmótið var haldið í Borgarleikhúsinu
í maímánuði. Keppendur voru 22 í
karlaflokki og svo ein kona. Nýr maður kom í
800kg flokkinn, Svavar Már Einarsson
|