| Kraftlyftingar eru fyrst stundaðar á Íslandi
í kringum árið 1960 og þá sem
grunnþjálfum frjálsíþróttamanna.
Talið er að 1955 til 56 hafi frjálsíþróttamenn
farið að æfa kraftlyftingagreinarnar með lyftingastöngum,
sem sleggjukastarinn Þórður B. Sigurðsson
hafði keypt í Bandaríkjunum. Fyrst var æft
í íþróttahúsi Háskólans,
en svo í KR- heimilinu. Um 1960 er farið að æfa
í ÍR húsinu og stofnuð óformleg
lyftingadeild í ÍR. Árið 1963 var hætt
að leyfa lyftingar í ÍR húsinu og fóru
menn þá í Ármannsheimilið við
Sigtún. Fyrsta mótið í kraftlyftingum
fór fram 1965 og var það liðakeppni milli
Ármanns og KR og voru þrír í liði
og keppendur því 6 alls. KR liðið sigraði
með 1543kg, en Ármenningar lyftu 1513kg. Í
liði KR voru Björn R. Lárusson, Friðrik
Guðmundsson og Ari Stefánsson. Í liði
Ármanns voru Svavar Carlsen, Guðmundur Sigurðsson
og Óskar Sigurpálsson. Árið 1985
þegar liðin voru 20 ár frá þessu
móti voru keppendurnir kallaðir saman til myndatöku
og birtist þessi mynd í ársskýrslu
KRAFT 1985.
Á fyrstu árum íþróttarinnar
fengu menn húsnæði hjá íþróttafélögunum
fyrir æfingar og var það aðallega ÍR,
Ármann og KR. Sérstök lyftingadeild var
stofnuð í KR 1970 og var mest lagt upp úr
kraftlyftingum hjá því félagi.
Árið 1968 fóru félagar í Grímudeild
KR, þeir Sigtryggur Sigurðsson, Ólafur Sigurgeirsson,
Ómar Úlfarsson og Jón Unndórsson
o.fl að æfa með heimsmíðuðum
tækjum í KR heimilinu. Árið eftir
voru keypt sænsk tæki og batnaði þá
árangur manna. Fyrir komu glímumannanna í
KR heimilið höfðu frjálsíþróttamennirnir
nokkrum árum fyrr æft á sama stað.
Þegar þarna var komið höfðu þeir
flutt sig um set inn í Ármannsheimili við
Sigtún, en þar voru aðallega æfðar
lyftingar.
Árið 1973 var leigt rúmgott húsnæði
í Brautarholti 22 og æfðu þar flestir,
sem lyftu í Reykjavík, hvort sem um var að
ræða frjálsíþróttamenn,
lyftingamenn eða kraftlyftingamenn, en á þessum
árum sérhæfðu menn sig lítið
og kepptu ýmist í kraftlyftingum eða lyftingum.
Árið 1974 fluttu menn sig í Sænska
frystihúsið, sem Reykjavíkurborg útvegaði
að frumkvæði Alberts Guðmundssonar. Þar
æfðu allir þar til í byrjun febrúar
1976. Þá fluttu Ármenningar sig í
Sigtúnið, en KR ingar í KR heimilið.
Undir vor 1976 fundu KR ingar gamla þvottalaugahúsið
í Laugardal og fengu það til afnota frá
Reykjavíkurborg gegn því að gera það
upp. Það varð svo með tímanum eini
staðurinn í Reykjavík, þar sem hægt
var að æfa með lyftingatækjum. Stóð
þetta til 1984, að flutt var í Engihjalla
8 í Kópavogi, en KR lyftingadeild og nokkrir
félagar þar keyptu æfingastöðina
og lyftingadeildin var nokkru áður farin að
reisa lyftingahús á KR lóðinni, þar
sem nú stendur líkamsræktarstöð.
Á þessum árum fóru að spretta
upp líkamsræktarstöðvar víða
um bæinn og hættu þá félögin
að útvega mönnum æfingaaðstöðu
og fór svo um 1985 við stofnun Kraftlyftingasambandsins
að allir kraftlyftingamenn í Reykjavík voru
ófélagsbundnir, en úti á landi
hagaði öðru vísi til. Eftir að Æfingastöðin
leið undir lok upp úr 1990 varð Gym 90 höfuðvígi
kraftlyftinga í Reykjavík og hefur svo verið
síðan.
Á Akureyri hófust kraftlyftingar um 1973, er
haldið var sýningamót á Akureyri.
Frumkvöðull þar var Vilhjálmur Ingi
Árnason. Verulegur skriður kom á málin
sama ár, er Björgvin Sigurjónsson flutti
frá Eyjum eftir gos og fékk send þaðan
tæki. Fyrst var æft í kjallara lögreglustöðvarinnar,
en síðan í ófullgerðu verslunarhúsnæði
Árna |