| Árnasonar. Mestan áhuga sýndi Grétar
Kjartansson. Eftir þetta fengu menn inni í íþróttavallarhúsinu
skamma hríð. Við byggingu íþróttahallarinnar
fengu þeir, sem lyftu svo sérstakan sal, sem nefndur
var Jötunheimar og þar æfa þeir enn,
sem ekki eru á líkamsræktarstöðvunum.
Sérsamband var stofnað innan ÍSÍ
árið 1973, Lyftingasamband Íslands og hafði
sambandið bæði lyftingar og kraftlyftingar á
sinni könnu. Fyrir stofnun sambandsins var starfandi
lyftinganefnd innan ÍSÍ frá 1969. Hélst
þetta fyrirkomulag þar til 2. mars 1985,að
stofnað var sérstakt samband um kraftlyftingar
KRAFT, en nokkru áður var Lyftingasambandið
orðið klofið, því starfandi voru
innan þess tvær deildir. Önnur fyrir kraftlyftingar
og hin fyrir lyftingar.
Fyrsta Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum
var haldið 1971, en fyrir þann tíma voru
haldið fjölmörg mót á vegum félaganna.
Helst er þar að nefna Kraftlyftingamót KR,
sem var árlegum viðburður í mörg
ár. Upplýsinga um mót er helst að
hafa úr skýrslum lyftingadeildar KR, en þar
sem hún er stofnuð 1970 er ómögulegt
að leita skriflegra heimilda lengra aftur.
1971.
Fyrsta Íslandsmeistaramótið haldið.
Keppendur voru 18 og lyftu tveir keppendur yfir 700kg. Óskar
Sigurpálsson lyfti 702.5kg í þungavigt
og Björn R. Lárusson lyfti 722.5 í yfirþungavigt.
1972.
Annað Íslandsmeistaramótið var haldið
með 21 keppanda. Einn keppandi lyfti yfir 700kg og var
það Björn R. Lárusson með 730kg.
Hann lyfti m.a. 200kg í bekkpressu, en Björn var
fyrstur Íslendinga til að lyfta 200kg í
bekkpressu og 300kg í réttstöðulyftu.
1973.
Keppendur voru 20 á þriðja Íslandsmeistaramótinu.
Þrír lyftu yfir 600kg. Guðmundur Guðjónsson
í 82.5kg flokki lyfti 620kg. Ólafur Sigurgeirsson
í 90kg fl. lyfti 632.5kg og Sigtryggur Sigurðsson
í +110kg fl. lyfti 660kg.
Á Kraftlyftingamóti KR þetta árið
lyfti Ólafur Sigurgeirsson 612.5kg í 82.5kg
fl., Óskar Sigurpálsson 705kg í þungavigt
og Sigtryggur Sigurðsson 642.5kg í yfirþungavigt.
1974.
Keppendur á Íslandsmeistaramótinu voru
3.
1975.
Keppendur á Íslandsmeistaramótinu voru
13. Tveir tóku yfir 600kg og einn yfir 700kg. Friðrik
Jósefsson í 90kg flokki lyfti 700kg, Skúli
Óskarsson í 75kg flokki lyfti 642.5kg og Gústaf
Agnarsson í 110kg fl. lyfti 620kg.
Þetta ár fór Skúli Óskarsson
á HM í Birmingham Englandi og fékk hann
bronsverðlaun í 75kg flokki með 612.5kg.
1976.
Skúli Óskarsson verður NM meistari í
75kg fl. og lyftir 650kg. Mótið fór fram
í Þrándheimi, Noregi. |