|
|
| Guðmundur Sigurðsson | Þá er komið að einum mesta kappa íslenskrar lyftingasögu: GUÐMUNDI SIGURÐSSYNI. Frumkvöðull lyftinga og vaxtarræktar á Íslandi er Guðmundur síðan upp úr 1960. Hann og Óskar Sigurpálss. fóru fyrstir frónbúa til keppni í lyftingum erlendis 1967. Tvisvar hefur Gvendur orðið Norðurlandameistari auk silfur og bronsverðlauna. Hann hefur tekið þátt í fjölda Evrópu og Heimsmeistaramóta í lyftingum og í tvennum Olympíuleikum. Á OL 1972 í Munchen varð Gvendur í 13 sæti í 82,5 kg flokki og á OL 1976 í Montreal náði hann 8-9 sæti í 90 kg flokki sem er meðal albestu árangra sem íslendingur hefur náð á Olympíuleikum. Guðmundur hefur margoft orðið íslandsmeistari bæði í lyftingum og kraftlyftingum og sett fjölda íslandsmeta. Hann varð með yfirburðum íslands og heildarmeistari í vaxtarrækt 1982 og 1983. Heimsmeistari öldunga í lyftingum hefur Gvendur orðið fjórum sinnum: 1989-1991-1993-1995 og silfur 2003. Norðurlanda og heimsmet öldunga hjá honum eru fjölmörg. Hann hefur í áratugi þjálfað í lyftingum og haldið lífi í þeirri íþrótt á erfiðleikatímum hér heima.
Guðmundur hefur jafnan verið nefndur: SILVER. | | | | Hér áður fyrr þegar Guðmundur var mest í sviðsljósinu var hann oft í blaðaviðtölum sem vöktu mikla athygli. Hann þótti spekingslegur mjög og með ákveðnar skoðanir á öllum íþrótta og þjóðlífsmálum. Hann var reykingamaður meðfram íþróttaferlinum. Það bar til tíðinda eitt sinn að Gvendur væri hættur reykingum. Af því tilefni spurði blaðamaður hann hverju þetta sætti? "Ég er orðinn leiður á því að láta sígarettuna stjórna lífi mínu!" svaraði Gvendur. Nokkrum vikum síðar fréttist að hann væri byrjaður aftur að reykja. Blaðamaður spurði hann hvernig stæði á því? Það stóð ekki á svarinu hjá Gvendi: "Ég er búinn að sjá það að lífið er alltof stutt til að láta svona nautn á móti sér!"
Nafngiftin SILVER kom þannig til að á Norðurlandamótinu í lyftingum í Köpen 1972 vann Gvendur til silfurverðlauna. Var það nokkur viðburður á þeim tíma. Fljótlega eftir það var hann kallaður SILVER og hefur verið það síðan. Guðmundur er enn að æfa og keppa og stóð sig vel á alþjóðlegu lyftingamóti í Danmörku í janúar á þessu ári 2004. Þar setti hann nokkur norðurlandamet öldunga og lyfti yfir gildandi heimsmetum. Þótt kappinn sé nú hátt á sextugsaldri er greinilegt að Gvendur Sig. á enn um hríð eftir að gleðja unnendur stáls og lóða með mögnuðum lyftum. | | Hugleiing: K-E | Heimild Harði diskur magisters | Dags. 5---0-2004 |
|
| Vidurnefni! |
Ef þið eruð
með ábendingar þá er hægt að
senda póst til okkar. meira>>
|
| |
|