|
|
| Arnar Már Jónsson | Arnar Már Jónsson hefur verið viðloðandi kraftlyftingar síðan 1993. Hann hefur einnig keppt í aflraunum og oftar en ekki verið valinn vinsælasti keppandinn af kvenþjóðinni. Arnar er einnig þekktur sem yfirstyrktar þjálfari fatlaðra í Reykjavík en þeir keppa í bekkpressu sem kunnugt er. Arnar stóð fyrir fyrstu aflraunakeppni fatlaðra í heiminum sem vitað er um. Auk þess sem hann kom á keppninni Sterkasti fatlaði maður heims sem fram fór á Íslandi 2003. Guðsgreinin er að sjálfsögðu í uppáhaldi hjá Arnari sem á ný afstöðnu Íslandsmóti í páver bætti sig í 210 kg á bekknum. Arnar hefur jafnan verið kallaður: LOGGURINN. | | | | Þeir sem ekki til þekkja hafa spáð og spekúlerað í þessa nafngift: Arnar loggur. Sumir hafa tengt hana orðinu lókur. Það mun þó eigi rétt vera, þótt það verkfæri Arnars njóti virðingar hjá þeim mörgu konum sem í tæri við það hafa komist. Sannleikurinn er sá að í einni af fyrstu kraftakeppnum Arnars, Vestfjarðavíking 1994 var m.a. keppt í drumbalyftu. Á ensku heitir sú grein: LOGLIFT. Drumburinn sjálfur eða loggurinn í þessari keppni vóg 100 kg nakinn, eða sem sagt án lóða. Var það byrjunarþyngdin. Fór það svo að Arnar lenti í miklum hremmingum þarna og var sá eini sem náði ekki að lyfta drumbnum. Það var ekki sökum að spyrja. Strákarnir fóru strax að kalla Arnar logginn, og hefur það nafn orðið fast við hann síðan. Frá því þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar og loggurinn hafið margan þungan logginn á loft..Og nú er stefnan á 800 kg í samanlögðu í páver næst.. | | Hugleiing: K-E | Heimild Harði diskur magisters | Dags. 5---0-2004 |
|
| Vidurnefni! |
Ef þið eruð
með ábendingar þá er hægt að
senda póst til okkar. meira>>
|
| |
|