|
|
| Jóhannes Hjálmarsson | Akureyringurinn Jóhannes Hjálmarsson á sér eftirtektaverðan feril í kraftlyftingum. Byrjaði að æfa og keppa 49 ára. Varð tvöfaldur heimsmeistari öldunga í 100 kg. flokki 1981 og 1982 auk silfurs 1983. Hann setti slatta af öldunga heimsmetum en Jói lyfti mest 285 kg í Réttstöðulyftu kominn vel yfir fimmtugt. Enda var sagt um Jóa að hann liti þannig út eins og hann væri alltaf tilbúinn að þrífa í stöngina..
Jói hefur verið kallaður: Jói fíra, Jói fíragott og Jói worlds. | | | | Eitthvað í kringum 1960 var Jói háseti um borð í togaranum Sléttbaki frá Akureyri. Þótti mönnum þar um borð athyglisvert að heyra Jóa segja sögur af sjálfum sér og voru þar yfirleitt sögur af aflraunum miklum. Í þá daga var mikið unnið á höndum og ekki síst í þessu skipi sem var gufuknúið og orðið þó nokkuð við aldur. Eitt af þeim verkum sem féll til hjá Jóa um borð var að stjórna spili sem hífði trollið inn fyrir og slakaði því svo út aftur. Reyndi verk þetta þó nokkuð á afl manna því það var stór ró sem þurfti að herða til að spilið virkaði. Jói fullyrti við sjóarana um borð að enginn á landinu gæti hert rónna líkt og hann sjálfur-slíkt væri afl hans og því virkaði spilið langbest hjá honum og trollið hreinlega FÍRAÐIST út hjá honum. Höfðu félagar hans gaman af þeim gorgeir sem ljómaði af Jóa. Einhvurju sinni þegar hann var spurður hvernig trollið færi? svaraði Jói því til að trollið FÍRAÐI GOTT. Mönnum fannst þetta undarlegt orðatiltæki hjá Jóa sem síðan límdist algjörlega við hann. Sem sagt: Jói FÍRAGOTT, stundum stytt í Jói FÍRA. Jói WORLDS kemur að sunnan eftir að Jói varð heimsmeistari. Þess má geta að tveir synir Jóa hafa einnig keppt með ágætum árangri í kraftlyftingum. | | Hugleiing: K-E | Heimild | Dags. 4---0-2004 |
|
| Vidurnefni! |
Ef þið eruð
með ábendingar þá er hægt að
senda póst til okkar. meira>>
|
| |
|