|
|
| Gunnar Ólafsson | Fimmti í þáttaröð vorri er yfirmolinn Gunnar Ólafsson. Hann var talsvert áberandi keppnismaður í páver og kraftakeppnum á áratugnum 1990-2000 á síðustu öld.
Varð m.a. Íslandsmeistari í páver og er meðal allra sterkustu íslendinga á bekk 240 kg. og tók þátt í Evrópu og Heimsmeistaramótum ofl.
Gunnar hefur verið nefndur: bartinn,gleðimolinn, og skemmujarlinn. | | | | Haustið 1992 er Gunnar eitt kvöld í góðum fíling staddur á pöbbnum "Skítur á priki." (Gaukur á stöng) Hann er þá allur svartklæddur frá toppi til táar. Þar hittir vinur vor ýmsa góða menn..Björgúlfur vreskí-wolf kallar þá strax til Gunna: "Blessaður batman!,nei bartman!-BART!".."Já,hrópuðu strákarnir á barnum..bart..bart.. já, BARTINN!
Síðan festist þetta nafn við Gunna sem var ekki par hrifinn af því. Hafði Gunni til siðs um tíma þegar einhver kallaði hann bartann að senda viðkomandi álmstrætis augnaráð og segja þungum rómi: "Ég heiti ekki bart,-Gunnar heiti ég Ólafsson."
Síðar þegar Gunni leigði íbúð á Hringbrautinni með Jóa litla Eiríkss. hlaut hann nafngiftina: GLEÐIMOLINN..en þeir vinirnir voru á þeim tíma félagslega meðvirkir á börunum ásamt því að lyfta lóðum við og við.
Á árinu 1999 flytur Gunnar í vöruskemmu í Hafnarfirði sem taldist vera í eigu Völundar Þorbjörnssonar lundans.Í eitt ár eða svo bjó Gunni í þessari risastóru skemmu sem var um ellefu hundruð fermetrar. Þar var Gunnar endurskírður af magister cat sem SKEMMUJARLINN. Nánar segir af skemmubúskap þessum í kvæðinu Skemmulíf sem er hér annarsstaðar á Steve vefnum.
Jarlinn er nú sestur í helgan páverstein og á börn og buru..
Þó er aldrei að vita nema hann þenji þungan massa síðar á palli stáls og lóða...
| | Hugleiing: K-E | Heimild Harði diskur magisters | Dags. 3---0-2004 |
|
| Vidurnefni! |
Ef þið eruð
með ábendingar þá er hægt að
senda póst til okkar. meira>>
|
| |
|