Vidurnefni!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánaðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
Linkar
Ofsinn Kanadarki
 
 
 
 

Rúnar Friðriksson
Fjórði í þáttaröðinni er Rúnar Friðriksson frá Akureyri. Rúnar var lengi keppnismaður í páver en lagði stöngina á hilluna eftir bílslys en er nú nýlega farin að hugsa um að keppa aftur. Hann var formaður Kraftlyftingafélags Akureyrar 1993-98 og hefur verið ein helsta driffjöður norðanmanna síðan. Rúnar hefur jafnan verið nefndur: fjósi, fjósafrömuðurinn, og fjósmundur.
 
Fjósa nafnið á sér nokkuð merkilega sögu. Árið 1985 byrjaði Rúnar að fást við lóðin í páver 14 vetra gamall í Jötunheimum á Akureyri. Þá um sumarið gerðist hann fjósamaður á Dagverðareyri í Glæsibæjarhreppi hinum forna. Um þetta leyti var sjálfur nýkrýndur sterkasti maður heims Jón Páll staddur fyrir norðan. Hann sá Rúnar koma á æfingu í bæinn á eldgamalli dráttarvél. Sjálfrennireið þessi var talin ná mest 18 km hraða og fór því mikill tími hjá Rúnari í æfingaferðalög úr sveitinni. Jóni Páli fannst mikið til um þessa æfingahörku Rúnars að skrölta þetta svona 4-5 sinnum í viku og vera kannski ekki kominn heim í háttinn fyrr en undir miðnætti. Sagði Jón við Magister að þessi strákur ætti skilið gott viðurnefni eins og FJÓSI og vera þannig tekinn inn í sterkra manna samfélag. Upp frá þessu urðu þeir Jón Páll og Rúnar mestu mátar og fjósa nafnið öðlaðist sinn virðingarsess í páversögunni. Nafngiftin: fjósafrömuðurinn, er afbrigði af fjósa sem oft hefur sést á prenti til hátíðarbrigða eins og fjósmundur einnig. Hinsvegar mun lýðum ljóst að það verður alltaf bara til einn og sannur fjósi..Sir FJÓSI..

Þegar Rúnar fjósi var 19 vetra 1990 tók hann upp í fyrsta sinn 200 kg í réttstöðulyftu á Íslandsmóti unglinga. Um það var þetta ort:

          Frömuðurinn tætti upp tvist
          tungur honum hrósa,
          kræfur mjög í kvennavist
          kraftur býr í fjósa.
Hugleiing: K-E (Magister cat) | Heimild power of the north | Dags. 3---0-2004



Vidurnefni!
Ef þið eruð með ábendingar þá er hægt að senda póst til okkar.
meira>>
 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is