Vidurnefni!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánaðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
Linkar
Ofsinn Kanadarki
 
 
 
 

Jens Fylkisson
Þriðji í röðinni er vefstjóri Kraft,Jens Fylkisson.Hann hefur nú keppt í páver um skeið en er aðallega þekktur fyrir vefstjórnina og að hafa komið vefsíðunni Kraft.is á laggirnar sem er ákveðið frumkvöðulsstarf. Jens hefur oft verið nefndur: Himmelbjerget, bjargið og estrogen.
 
Þegar Jens var á ferð í Finnlandi 1998 í bænum Sotkamo á EM í páver með Auðunni og Gunnari skemmujarli, vildi svo til að jarlinn rakst utan í Jens þegar þeir voru að bíða eftir stórsteik í matsölunni á mótsstað.Þá á jarlinn að hafa sagt: "Það er nú meiri þunginn og fyrirferðin í þér Jens,þú ert eins og Himmelbjerget!" Eins og menn vita er Himmelbjerget (Himnabjargið) nánast eina fjallið í Danmörku og er á við meðal þúfu á Íslandi. Fljótlega varð þessari nafngift breytt í:"bjargið", og mun Jens sjálfur hafa átt mestan þátt í því. Þessi nöfn náðu ekki að festast við hann almennilega. Hinsvegar varð annað upp á teningnum þegar hr.estrogen kom fram.. Kári magister og Hörður Magnússon sátu þing Kraft 2004, núna kvöldið fyrir Íslandsmótið í bekk.Stjórnin sat sér á upphækkuðum palli. Þar var Jens mættur og þandi kassann út í loftið eins og mest hann mátti, án þess að segja orð á þinginu. Eftir dálítinn tíma pikkaði Hörður stæltum fingri í magister og segir með lotningu í röddinni:"Sjáðu kassann á Jens,hann hlýtur að vera upp á 220-230kg á bekk!" Magister leit þá með hneykslan á Hörð og sagði:"Blessaður maður, þetta eru estrogen túttur!- Hann getur kannski marið um 200 í framhaldslífs-slopp!" Á mótinu daginn eftir tók Jens naumlega 202,5 í framhaldslífi. Rétt eftir það kom Hörður til magisters og sagði:"Þetta er alveg rétt hjá þér Kári-það er bara estrogen páver í Jens!" Fjlótlega eftir þetta fór estrogen nafnið að öðlast vinsældir sem stöðugt fara vaxandi..

   Tölvan vistar voldug lén
   og verndar þann í sumu,
   sem hefur ótal estrogen
   í hverri líkamsfrumu..

Hugleiing: K-E | Heimild Raunheimur páversins | Dags. 2---0-2004



Vidurnefni!
Ef þið eruð með ábendingar þá er hægt að senda póst til okkar.
meira>>
 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is