|
|
| TILURÐ UPPNEFNA - ARTHUR BOGASON | Þá verður fjallað um heljarmikinn jaxl sem sem setti svip á páverlíf landans um tíma á síðustu öld, ARTHUR BOGASON.
Hann vakti gífurlega athygli þann tíma sem hann stundaði kraftlyftingar og fékk mikla fjölmiðla umfjöllun og ekki síst eftir að hann setti tvö Evrópumet í réttstöðulyftu í 125 kg flokki 1980. og varð Íslandsmeistari í þeim flokki sama ár eftir frækinn og dramatískan sigur á Jóni Páli sem tapaði þar sinni einu keppni fyrir íslending.
Arthur kom sterkur inn í sportið því hann tók 560kg í samanlögðu á sínu fyrsta móti seint á árinu 1978 og tók þá m.a.240 í réttstöðunni. Í febr. 1979 lyfti hann á öðru pávermóti sínu: 280-140-280-700kg! Var þá ljóst að þarna færi enginn venjulegur moli. Í maí þetta ár þyngdi hann sig upp í súper eða 125+ og tók 140kg að skjóðuþyngd þar miklar bætingar: 300-152,5-320,5-772,5kg en réttstaðan var nýtt Íslandsmet og kom það mjög á óvart og varð Arthur upp frá þessu kunnur á meðal þjóðarinnar. Á Akureyri 1.júní stútaði Túri 800 kg múrnum með: 310-160-330-800 og setti aftur íslandsmet í réttstöðunni. Á Íslandsmótinu rétt viku síðar tók hann 805kg í samanlögðu og varð Íslandsmeistari í súpernum og bætti deddmetið enn í 332,5.
Arthur keppti þetta ár á HM sem fram fór í Dayton í USA og stóð sig vel. Hann varð í 6.sæti í súper og tók þar sína mestu réttstöðulyftu 342,5 sem var nýtt Íslandsmet og mesta þyngd íslendings á þessum tíma en Túri tók þarna: 310-170-342,5-822,5kg.(bekkurinn slopplaus sem þýðir 200-210 í tæknisloppum nútímans) Örlögin höguðu því þó þannig að hann átti ekki eftir að bæta þennan árangur sinn þótt hann tæki 315 í beygjum síðar á móti hér heima.
Arthur hefur verið kallaður: NORÐURHJARATRÖLLIÐ.
| | |
ÞAÐ SKIPTIR MIG ENGU ÞÓTT KLUKKAN SÉ ORÐIN MARGT - ÉG SLEPPI EKKI STÖNGINNI FYRR EN ALLT ER ORÐIÐ SVART
Í heilsíðu viðtali í Vísi í sept 1979 sagði Arthur margt athyglisvert og m.a. þetta: "Kraftlyftingar eru þrjóskuíþrótt og ég er ægilega þrjóskur þegar ég er að keppa. Ég sleppi ekki þyngdinni fyrr en allt er orðið svart fyrir augunum á mér. Þá veit ég heldur ekkert hvað er um að vera í kringum mig."
Túri var einnig frægur bíladellumaður og átti einhvert frægasta tryllitæki landsins um tíma sem var Shelby Cobra GT 500 með 8 strokka vél yfir 500 hestöfl ofl. og var talinn kraftmesti bíll landsins þá.
Um þetta leyti kynnti Danni langi Túra fyrir Gústafi Agnarssyni lyftingakappa með þessum fleygu orðum: "Gústi, má ég kynna fyrir þér Arthur Bogason sem á kraftmesta bíl landsins.... og Arthur þetta er Gústaf Agnarsson sem á kraftmesta líkama á landinu!"
NORÐURHJARATRÖLLIÐ
Túri er mikil fyrirferð í útliti og fljótlega eftir að afl hans kom í ljós gaf Bernharð Haraldsson skólameistari á Akureyri honum hið tilkomumikla viðurnefni: NORÐURHJARATRÖLLIÐ . Túra var fyrst bölvanlega við þessa nafngift en varð fljótt sáttur við hana því eins og hann segir sjálfur er það langt frá því að vera niðurlægjandi!
Stundum er það þó stytt í NORÐURHJARI og við létt tækifæri í HJARI! Þótt Arthur sé hættur keppni eru margir íslendingar sem þekkja hann undir nafninu: NORÐURHJARATRÖLLIÐ.
EVRÓPUMETIN Í RÉTTSTÖÐULYFTU
Það voru fyrst og fremst Evrópumetin tvö sem Túri setti í réttstöðulyftu sem gerðu hann frægan á Íslandi. Fyrra metið 335kg í 125kg flokki setti hann á Akureyri 17.maí 1980.
Í RUMARÍMU 1980 orti Magister Cat svo um þennan viðburð:
Engin má nú orðin spara
enginn má nú dreyma!
Nú er komið að Norðurhjara
nú má engu gleyma!
Spenningurinn streymdi þá
sem kjarnorka um völlinn,
þegar tröllið tók svo á
titruðu hús og fjöllin!
Eftir að stöngin sveif á flug
sparaði hún ekki fetið,
kappinn digri af heilum hug
hífði upp Evrópumetið!
Seinna Evrópumet Túra setti hann á eftirminnilegan hátt á Íslandsmótinu 31.maí 1980 í miklu einvígi við Jón Pál í 125kg flokknum. Nákvæmlega 340kg í réttstöðulyftu þurfti Norðurhjarinn að taka til að sigra og setja nýtt Evrópumet. Það gerði hann glæsilega og tók 812,5 í Samanlögðu á móti 810 hjá Jóni Páli.
HNÉBEYGJUHNÖKRI - ÆFINGAR Í AMERÍKU
Rétt mánuði eftir vel heppnað Íslandsmót í páver mætti Túri á mót á Akureyri og var þá orðinn þreyttur á að halda skjóðuþyngdinni niðri og féll úr í hnébeygjum á 310 kg.
Um það var þessi vísa kveðin:
Heyrðu allir háan skell
hvolfdi miklu fari,
úr keppni fyrsta sinni féll
frægur Norðurhjari.
Arthur fór síðan til æfinga í Dayton í USA í boði Larry Pacifico nífalds heimsmeistara og síðar kom svo Víkingur heimsskautabangsi þangað líka. Dagblöðin hér heima fylgdust grannt með Túra þarna og birtust reglulega fréttir af honum. Til að mynda var sagt frá því er Túri tók á æfingu 362,5 kg í réttstöðunni. Það fór svo að hann keppti á einu móti í Ohio en meiddist í fyrstu tilraun við 350 kg þegar mishlaðið var á stöngina. Fljótlega eftir þetta var kappinn alkominn heim og keppti ekkert meira í páver.
TRILLUVEIÐAR OG FORMAÐUR SMÁBÁTAEIGENDA
Eftir heimkomu frá Ameríku fór Arthur að veiða í soðið sem tæknilegasti trillukarl íslendinga. Hann gerðist síðan formaður Landssambands smábátaeigenda á Íslandi sem hann hefur verið síðan og þykir halda magnaðar ræður yfir ráðherraliði sem öðrum þegar það á við. Nýlega var Túri einnig kosinn formaður Alþjóðasamtaka strandveiðimanna og er hinn hressasti og les stevegym.net reglulega til að halda andanum í formi....
| | Hugleiing: K-E | Heimild | Dags. 7---0-2005 |
|
| Vidurnefni! |
Ef þið eruð
með ábendingar þá er hægt að
senda póst til okkar. meira>>
|
| |
|