|
|
| BJARKI ÞÓR SIGURÐSSON | Steve Gym molinn BJARKI ÞÓR SIGURÐSSON hefur verið vel virkur í kraftlyftingum frá því árið 1995. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna á ýmsum mótum. Bjarki vann brons á sínu fyrsta Íslandsmóti á Akureyri 1997 en þá tók hann tölurnar: 250-150-250-650 í 110kg flokki. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og afl í vöðva. Hann tók sitt besta samanlagt 2004 þegar hann vann aftur brons í 125 með : 300-205-295-800kg. Þessi 800kg múr hafði þá verið á dagskrá um skeið. Bjarki hefur einnig staðið sig vel á Íslandsmótum í bekk og í réttstöðulyftu. Einmitt réttstaðan er hans besta grein en þar á hann best 320kg þegar hann varð Bikarmeistari í 125 árið 2002.Bjarki hefur enda orðið þrisvar sinnum Íslandsmeistari í réttstöðulyftu árin 1999-2001-2003 en Bjarki tók þá 300 kg í öll skiptin í 110 en 300 hefur hann alltaf getað tekið í deddinu nema vera veikur, meiddur, eða hálfdauður, eða eitthvað.
Bjarki hefur verið nefndur: GEYSIR | | |
UPPHAF ÆFINGA - GEYSIR KEMUR TIL SKJALANNA...
Bjarki byrjaði að æfa kraftlyftingar árið 1995 í gamla Steve Gym í Brautarholtinu. Hann féll strax inn í hópinn og varð frábær félagi ásamt Eika gufubaðsstjóra, Svavari fitness, Gunnari master, Gumma landkynningu, Skemmujarlinum og fleirum. Það varð snemma ljóst að Bjarki væri efnilegur í réttstöðunni því nánast strax tók hann 200kg og nokkrum vikum síðar var hann búinn að taka 215. Rétt eftir það rann upp sá dagur að enn ein bætingin þar átti að fara upp...225kg voru á stönginni. Hvatningin hljómaði í loftinu. Fílingurinn var hrikalegur. Krumlurnar hjá hinum verðandi mola læstust um stálið og stöngin hentist af stað... komin upp fyrir hné fór allt skyndilega að hægjast en áfram var togað og togað..en skyndilega gerðist hið óvænta...Bjarki opnaði kjaftinn í öskri að menn héldu en þá kom þessi hrikalega ælugusa sem slettist geigvænlega út um víðan völl..Menn héldu að bætingin væri farin en ælukappinn streðaði áfram með fargið þar til stöngin stöðvaðist í lokastöðu..og setti hana svo niður sallarólegur.
Eiríkur gufubaðsstóri var hálf stjarfur eins og aðrir yfir þessu en sagði síðan í viðurkenningartóni: "Þetta var víst GEYSIR!" Eftir þetta hefur Bjarki verið kallaður þessu virðingarmikla nafni og engu öðru...
Um þetta var síðan þessi vísa kveðin:
Bjarki fór í tryllings tos
tæplegt var það spil,
eftir alveg geðveikt gos
varð Geysir okkar til...
BAKKUSAR-MOLASÖGUR
Eins og flestir Steve Gym menn er Bjarki rólegheitar maður við skál og dettur varla né drýpur af honum fremur en dags daglega. Eftir Íslandsmótið fyrir norðan 1997 gerðu menn sér glaðan dag. Veisla var haldin í Íþróttahöllinni og eftir hana var haldið í bæinn. Á leiðinni þangað stöldruðu nokkrir valinkunnir menn við nokkuð stóra vegasteina sem var búið að planta rétt við sundlaugina. Geysirinn var afburða hress og vildi nú bæta sér upp deddið á mótinu sem hann var ekki vel ánægður með.... Réðist hann nú til atlögu við hvern steininn á fætur öðrum og deddaði þá vel upp og fleygði þeim síðan í allar áttir undir hvatningu frá Gufubaðsstjóranum og Magister Cat. Meira segja þyngsti steinninn sem var örugglega 200kg var tekinn upp af Geysinum sem var í ótrúlegum ham. Síðar um nóttina heyrðust sögur af því að hann hafi einnig deddað nokkra bíla og farið létt með. Vikuna á eftir sást Bjarki ekkert á æfingum en hermt var að hann væri eitthvað svo furðulega slæmur í bakinu...
Einhverntíma á tímabilinu 1996-1999 kom Bjarki í mikið partý að Hringbraut 107 en þar bjuggu þá Gunnar Ólafsson bart, síðar Skemmujarl og Jói Omegakraftur og á tímabili Magister Cat. Í partý þessu lengst af var Bjarki fremur dauflegur og toguðust fá orð út úr honum. Þegar líða fer að nóttu stökk hann allt í einu á fætur með nánast fulla Vodkaflösku í hendi og rak upp hálgert stríðsöskur. Tók hann síðan flöskuna og drakk hana alveg óblandaða niður í hálfa, í einum teyg.. Þetta kunnu menn að meta og eigi varð annað séð en Bjarki fyndi mikið fyrir þessu nema að upp úr þessu varð hann hrókur alls fagnaðar... Sko, ekkert grín að ætla að drekka Geysi undir borðið...
MEIÐSLI - STAÐAN NÚNA
Bjarki sem hefur verið mikið á uppleið á bekknum síðustu tvö ár hefur á sama tíma verið nokkuð óheppinn með meiðsli á öxlum.
Á þessu ári meiddist hann nokkuð illa í annarri öxlinni. Eftir aðgerð er hann nú í endurhæfingu þegar þetta er ritað sumarið 2005. Vonumst við eftir því að sjá hann sem fyrst hrikalegan á pallinum og dedda út í eitt.. því miklar þyngdir bíða sannarlega eftir því að GEYSIR togi í þær... | | Hugleiing: K-E | Heimild | Dags. 6---0-2005 |
|
| Vidurnefni! |
Ef þið eruð
með ábendingar þá er hægt að
senda póst til okkar. meira>>
|
| |
|