|
|
| FREYR AÐALSTEINSSON | Sögulegur jaxl að norðan ber nafnið: FREYR AÐALSTEINSSON.
Hann er nokkuð gamall í hettunni og er innfæddur Akureyringur.
Hann keppti reglulega í lyftingum og kraftlyftingum hér heima á árunum 1975-1985 en flutti síðan til forfeðranna í Noregi og hefur æft og keppt í kraftlyftingum þar. Freyr var nokkuð áberandi sem afreksmaður í lyftingum fyrst í stað og setti ein 27 Íslandsmet unglinga og fullorðinna á ferlinum og varð m.a. Íslandsmeistari 1980 og 1981 og háði nokkur söguleg einvígi við hina kunnu kappa Harald Ólafsson og Þorstein Leifsson. Besti árangur Freys í lyftingum er: í 75kg fl:127,5 í snörun og 150 í jafnhöttun og 272,5kg sml. Í 82,5kg fl.: 136 í snörun og 162,5 í jafnhöttun og 297,5kg í sml. Freyr keppti á nokkrum Norðurlandamótum unglinga í lyftingum.
Kraftlyftingar æfði Freyr alltaf eitthvað með lyftingunum og snéri sér seinna alfarið að þeim eftir að hann meiddist á úlnlið í snörun. Hann hlaut brons á NM í kraftlyftingum 1983 í Reykjavík.
Hann varð Íslandsmeistari 1984 í 82,5 kg flokki og sama ár vakti hann mikla athygli í Landskeppni Skota og Íslands sem fram fór ytra í Paisley. Freyr sigraði þar skotlandsmeistarann glæsilega og náði þar sínum besta árangri : 255-160-280-695kg en bekkurinn með 160 er vitanlega án slopps. Í Noregi hefur Freyr orðið nokkrum sinnum suður norskur meistari og al-norskur klúbbameistari 2 sinnum með félögum sínum í Stavanger. Norðmenn hafa aldrei botnað neitt í þessum granna íslending sem hefur þegar mest á reynt, deddað þeirra menn af sér af ótrúlegri seiglu og hörku sem aðeins þekkist hér á landi frosta og fanna...
| | | Freyr hefur verið nefndur:OLÍUFURSTINN og FURSTINN
------------------------------------------------------------------------------------------
UPPHAF ÆFINGAFERILS - ÆTTARKÖTTURINN HRIKALEGUR
------------------------------------------------------------------------------------------
Freyr sem er úr Glerárþorpi á Akureyri og því réttnefndur þorpari að hætti heimamanna byrjaði ungur að lyfta. Árið 1975 15 ára gamall byrjaði hann æfingar í Vallarhúsinu sem stendur við aðal íþróttavöll bæjarins. Lyftingamenn höfðu aðstöðu þar í nokkur frumherja ár og þarna með Freysa byrjuðu að lyfta þeir Grétar Kjartansson, Hjörtur Gíslason, Kristján Falsson,Guðmundur Svanlaugsson ofl. verðandi jaxlar. Á þessum tíma æfðu þeir eins og ljón 6 daga í viku og tóku toppa á hverri æfingu. Og ef eitthvað klikkaði var prógramminu breytt og síðan haldið áfram með bætingarnar.. Þetta voru allt hin mestu æfingafól og Freyr náði þarna eftir 1 árs þjálfun að dedda 200kg rétt 16 ára í 67,5 kg flokki. Freyr lagði ekki aðeins rækt við að verða sterkur á þessum árum heldur lét hann heimilsköttinn Mána éta prótein í aukamál og varð sá köttur heilmikill moli og gersigraði alla fressketti í bænum í slagsmálum um hylli fegurstu kattafljóðanna. Máni þessi leit all svakalega út en hann var allur tættur og rifinn um hausinn eftir alla sigrana og bar prótein massann með stolti.
------------------------------------------------------------------------------------------
NOREGSFLUTNINGUR - UPPNEFNI - AFMÆLISVÍSUR
------------------------------------------------------------------------------------------
Freyr sem er lærður járnsmiður flutti til Stavanger í Noregi í mars 1985. Hann hefur unnið þar á borpöllum meira og minna síðan og farið í vinnuna á þyrlum við hinar erfiðustu aðstæður oft og tíðum. Freyr hefur haldið tryggð við klúbbinn Björns Gym og æft þar allar götur. Þar var haldin árið 1987 Bæjakeppni á milli Stavanger og Akureyrar í kraftlyftingum sem Freyr stóð fyrir. Keppt var í tveimur 5 manna sveitum og sigruðu Akureyringar. En öll sú ferð var hin skemmtilegasta og skrifaði Magister heilsíðu um það í Moggann.
Fljótlega þegar Noregsferð Freysa stóð fyrir dyrum fóru páverfélagarnir að kalla hann: OLÍUFURSTANN sem oft er stytt í: FURSTINN og kom þessi nafngift úr smiðju Magister Cat en á þessum tíma á níunda tug síðustu aldar urðu norðmenn nýrikir af olíu og borpallar spruttu út um allt þarna á norðursjónum. Freysi hefur það fínt þarna úti og á flott einbýlishús og veður í kellingum þegar verða vill. Þegar hann varð þrítugur 1988 orti Magister létt afmæliskvæði til hans og þar voru m.a. þessar vísur:
Þrítugur öldungur þykir nú vænn
því ellin vísdóminn hýsir,
þú verður ætíð góðlega grænn
úr geðinu blíðan lýsir.
Metunum gafstu magnaða reið
mörg voru þung í skafli,
hugurinn lyfti þeim hálfa leið
hitt fóru þau með afli.
Þú hefur jafnan gert það gott
ég glaður mun það segja.
Núna hefurðu það fjandi flott
í faðmi norskra meyja.
(Þetta síðasta erindi vísar til þess að Freysi hefur a.m.k. einu sinni gifst norskri konu og barnað hana osfrv.)
Freyr er nýlega orðinn landkrabbi í vinnu og æfir páverinn nokkuð vel. Hann segist enn eiga eftir að bæta sig í réttstöðunnni þarna úti og segist stefna að því að klára það dæmi áður en hann flyst aftur heim á klakann...
| | Hugleiing: K_E | Heimild | Dags. 8---0-2007 |
|
| Vidurnefni! |
Ef þið eruð
með ábendingar þá er hægt að
senda póst til okkar. meira>>
|
| |
|