Vidurnefni!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánaðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
Linkar
Ofsinn Kanadarki
 
 
 
 

VÖLUNDUR ÞORBJÖRNSSON
Röðin er nú komin að nokkuð umdeildum jaxli sem setti mikinn svip á kraftlyftingar og íslenskt viðskiptalíf um nokkurra ára skeið: VÖLUNDUR ÞORBJÖRNSSON. Hann keppti mikið í kraftlyftingum á árunum 1993-97 og varð snemma sterkur á bekk og tók um tvítugt 150kg slopplaust á sínu fyrsta byrjendamóti. Völundur hafði mestan áhuga á guðsgreininni og varð m.a. tvisvar Íslandsmeistari á bekk 1996 og 1997 auk sigra á Sumarmótum KRAFT ofl.. Hans besti bekkur er 210 slopplaust og 212,5 í sloppi. Völundur stundaði einnig lyftingar um skeið og náði þar að lyfta sæmilegustu telpuvigtum. Í stjórn LSÍ var hann mun kraftmeiri við að rífa íþróttina upp við mótahald og skapa aðstöðu ofl. Völundur var einnig hörku mótshaldari í kraftlyftingum og var áberandi á því sviði 1994-98. Hann opnaði æfingastöðina JÖTUNHEIMA í Dugguvogi í Reykjavík 1996 og skapaðist þar góð aðstaða fyrir bæði lyftingar og kraftlyftingar og náðist þar oft mjög góður andi. Þar voru t.d. haldin kraftlyftingamót undir heitinu: BACK TO BASICS en það voru mót sem keppt var í án útbúnaðar eins og stálbrókar og slopps. Völundur stofnaði síðan 1998 nýja stöð, KRAFTSPORT en seldi hana svo og nýjir eigendur settu hana fljótt á hausinn. Í dag heldur Úrsusinn nafni þessu lifandi sem öflugri vefsíðu sem minningu um framkvæmdagleði Völundar. Viðskiptalíf Völundar er skrautlegt í meira lagi og verður ekki mikið farið út í það. Nefna má að hann var stórtækur í fasteignaviðskiptum og velti hundruðum milljóna. Hann átti t.d. Hótel Húsavík á tímabili auk ýmissa annarra eigna. Hann reisti búlluna CASINO sem enn starfar á suðurhorni landsins. Einnig stofnaði Völundur öryggisfyrirtækið MAGNUM SECURITY sem var leiðandi á sínu sviði í dyravörslu og tónleikagæslu ofl. og varð frægt að endemum. Völundur hefur verið kallaður: LUNDINN og OFSINN
 
------------------------------ UPPRUNI OG ÆFINGABYRJUN ----------------------------------- Völundur fæddist á Húsavík 11.maí 1972 en flutti til Reykjavíkur tvítugur að aldri. Sem unglingur stundaði hann lítið íþróttir en þótti snemma liðtækur á vígvöllum sveitaballana...Fyrir sunnan byrjaði hann að vinna í dyravörslu á Gauknum með Benna beikoni og Úlfinum (Björgúlfi Stefánss.) og fleiri góðum molum. Þeim fannst sveitastrákurinn nokkuð snar í snúningum en vanta þó tilfinningalega massa. Því varð úr haustið 1992 að Völundur hóf æfingar í Gym 80. Kom hann fyrst hvergi nærri páverhorninu en fór síðan að venja komur sínar þangað. Beikonið og Verinu fannst hann þó full kjaftfor og útskýrðu fyrir honum að þarna fengju menn ekki að rífa kjaft fyrr en þeir ættu tvistinn á bekk. Völundur tók svo tvistinn í ársbyrjun 1994 og hefur ekki hætt að rífa kjaft síðan eins og menn vita.
--------------------------------- LÖGGUSLAGUR - HVERFISTEINN OG UPPNEFNI ---------------------------------- Pávermenn fóru fljótlega að kalla Völund: LUNDANN sem er auðvitað einföld stytting á nafninu sjálfu. Nafngiftin: OFSINN kom hinsvegar undir á sérstöku KÝLINGARTÍMABILI hans 1994 þar sem Völundur átti í útistöðum við þjóna lagar og réttar...En svo segir í helgum ritum: Völundur var með stórpartý heima hjá sér en svo vildi til að hann æstist svo mjög við gesti sína að hringt var í lögguna...Þegar löggan kom á staðinn vildi Lundinn ekki yfirgefa samkvæmið svo glatt og upphófst nú mikill bardagi hans við fjölmargar löggur. Allt innanhúss var brotið og bramlað þar til loks 6-7 löggum tókst að yfirbuga kappann. Var hann síðan járnaður í bak og fyrir og fluttur í Hverfisteininn.Þar voru járnin tekin af honum og honum síðan fleygt inn í klefa einn þar sem Ástþór forsetaframbjóðandi meig og skeit í út um allt nokkrum árum síðar. Eftir nokkra stund bankar Lundinn á klefadyrnar og biður vörðinn um vatn að drekka. Vörðurinn opnar lúgu á hurðinni og segir: "Þú færð ekkert vatn helvítis óbermið þitt!" Við þetta brjálaðist Lundinn og náði í gegnum lúguna að þrífa í skyrtu varðarins og skella honum svo fast í hurðina að hann vankaðist og nefbrotnaði þannig að blóðið flaut um gólf. Lundinn vissi um leið og það var afstaðið að þetta myndi KOSTA...Eftir smástund heyrðist innan um vein varðarins þungur dynur margra fóta á ganginum..Óteljandi löggur með kylfur á lofti þustu svo inn í klefann og börðu Lundann sundur og saman og járnuðu hann síðan aftur. Morguninn eftir var Lundinn færður fyrir varðstjórann til yfirheyrslu. Varðstjórinn leit á hann myrku augnaráði og sagði: "Jæja góði, það mun kosta þig að nefbrjóta vörðinn!" Lundinn ýtti nú rifinni skyrtu sinni frá líkamanum og svaraði: " Er það svo víst?" Við blasti nú hold Lundans frá mitti og upp í háls allt blátt, marið og blóðrispað..Varðstjóranum brá nokkuð og síðan sagði hann: " Ég held við séum kvittir!" "Segjum það!" svaraði Lundinn. Síðan var honum sleppt án nokkurrar ákæru. Þegar Gunnar Ólafsson, bartinn var nokkru síðar að segja Beikoninu og Úlfinum þessa sögu á Gauknum þá grípur Benni frammí að sögunni hálfnaðri og segir: "Og gátu þeir hamið OFSANN.? Síðan þá hefur Völundur verið kallaður þessu nafni. ---------------------------------- LANDFLÓTTI TIL KANADA-KICKBOX OG BEKKUPPRISA ---------------------------------- Skattmann og fleiri voru farnir að sauma illilega að Völundi svo hann haustið 2001 flutti búferlum með kerlu sinni til Ottawa í Kanadaríki. Þar lærði hann sjúkranudd í háskóla en fór síðan í viðskipti í byggingarbransa sem gengur ennþá vel. Bekk upprisu hefur og Lundinn tekið sem endaði í 210 slopplaust. En í seinni tíð hefur hann líka fiktað við kickbox og barist æfingabardaga við þrefaldan heimsmeistara í þungavigt sem heitir Ben Stewart. Heimsmeistarinn sem á stöðina veðjaði að Lundinn myndi ekki endast þær 2 lotur sem bardaginn stæði. En þrátt fyrir glóðarauga, blóðsprungnar og bólgnar varir stóð hinn þrjóski íslendingur af sér loturnar og fékk lífstíðarkort í stöðinni að launum. Ekki er ljóst hvenær OFSINN flytur aftur heim á klakann og tekur á bekknum en það verður örugglega einhverntíma sem andinn kallar... ----------------------------------
Hugleiing: K-E | Heimild k.elison@mmedia.is | Dags. 1---0-2005



Vidurnefni!
Ef þið eruð með ábendingar þá er hægt að senda póst til okkar.
meira>>
 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is