|
|
| Torfi Ólafsson |
Þá fjöllum við um einn okkar kunnasta yfirmola í gegnum tíðina: TORFI ÓLAFSSON heitir sá kappi.
Frægastur er Torfi fyrir afrek í unglingaflokki í kraftlyftingum en hann varð tvisvar heimsmeistari í 125+. Torfi sigraði á HM 1985 í Soest í Þýskalandi og aftur 1986 í Indlandi. Hann setti ein 5 heimsmet unglinga í réttstöðulyftu á ferli sínum og vann allt sem hægt er sem unglingur, þ.a.s. varð Íslands-Norðurlanda-Evrópu og Heimsmeistari. Hinsvegar í fullorðinsflokki fór fremur lítið fyrir honum miðað við hvílikt efni hann var og náði lítið að bæta unglingaárangur sinn í tölum."Fullorðinshræðsla", er það sem talið er að hafi háð honum en það hefur stundum loðað við afburða unglinga að ná ekki að fylgja hæfileikunum eftir þegar út í alvöruna er komið. Besta árangri sínum í kraftlyftingum náði Torfi 1986 í Landskeppninni Kalifornía-Ísland sem fram fór ytra en Torfi vann þar súperinn glæsilega með: 350-192,5-370-912,5kg. Torfi á betri árangur í einstökum greinum en náði aldrei að raða því saman. Hans bestu tölur eru: Hnébeygja:357,5 bekkur:220 Réttstaða:370,5 En Torfi setti slatta af Íslandsmetum í réttstöðu og var t.d. 370,5 kg lyftan mesta þyngd sem íslendingur hafði lyft á þeim tíma en það var 1988 á Akureyri. Á síðari árum hefur Torfi að mestu snúið sér að kraftakeppnum og keppt á fjölmorgum mótum bæði hér heima og erlendis. Hann hefur allavega einu sinni unnið titilinn Sterkasti maður Íslands og keppnina Aflraunameistari Íslands hefur hann einnig unnið. Torfi hefur keppt a.m.k. tvisvar í keppninni Sterkasti maður heims og staðið sig vel.Torfi hefur jafnan verið nefndur: TORFAN og LOÐFÍLLINN
| | | | --------------------------
"STÓR SLÁNI OG ÁKAFLEGA VEL FEITUR"
----------------------------------
Torfi byrjaði að æfa kraftlyftingar snemma árs 1982 17 ára gamall í Reykjavík undir stjórn Jóns Páls og Skúla Óskarss. Og eins og hann sagði sjálfur í viðtali við DV 1986 : "Þá var ég 147kg stór sláni og ákaflega vel feitur!" Torfi sagði ennfremur að hann ætlaði sér í framtíðinni að verða um 150kg að staðaldri en hefði orðið mest um 170 og þá hefði hann verið við dauðamörkin!
Magister man eftir því að rétt fyrir vigtun á móti á Akureyri vigtaði Torfi sig 170 kg og dauðbrá við það..Hann fór svo á klóið og var vigtaður inn í keppnina aðeins 165kg svo einhverju skilaði hann af sér..( Síðustu ár hefur Torfi verið um 190-200kg að skjóðuþyngd og er enn sprækur langt fyrir ofan "dauðamörk"
Torfi mætti á sitt fyrsta Íslandsmót vorið 1982 og vakti mikla athygli en mótið fór fram á Akureyri. Torfi var heppinn því hann varð meistari í 125+ með tölurnar: 210-115-245-570kg. Þarna varð strax ljóst að hann var mikil deddtýpa því þessi 17 ára gutti fór upp með 275 þótt hann fengi það ógilt sökum tæknigalla. Hann varð einnig meistari árið eftir í súpernum en tölurnar höfðu heldur betur vaxið: 300-157,5-332,5-800kg í totali! Síðan hélt hann áfram að bæta sig og vinna titla eins og lýst er hér að framan í formála.------------------------------------
LOÐFÍLAFÉLAGIÐ KEMUR TIL SÖGUNNAR
----------------------------------
Fyrstu árin var Torfi kallaður TORFAN en þessi nafngift kom af sjálfu sér hjá páverstrákunum. Síðar um 1984 heyrði Magister hann fyrst nefndan LOÐFÍLINN en það var í Skotlandi í Landskeppni skota og íslendinga í Paislay. Þar voru þeir "skörin" Óskar Sigurpálss , og Víkingur Trausta ásamt að sjálfsögðu Torfa nefndir LOÐFÍLARNIR en það var upphafið að hinu svonefnda LOÐFÍLAFÉLAGI sem Torfi segir að sé leyniregla..en vígsla í félagið fór fram í heita pottinum í Æfingastöðinni Engihjalla og er vitað allavega um einn félaga í viðbót, en það er "LOPINN " Geir Þórólfsson. Ekki hefur fengist staðfest hvort menn þyrftu að drekka lýsisvatnið í pottinum við vígslu inn í félagið en allavega er talið að kaffæring hafi verið á dagskrá...--------------------------------------------------------
HEIMSMEISTARI Í INDLANDI
---------------------------
Þegar Torfi varð heimsmeistari unglinga í borginni Cohen í Indlandi vakti hann hvarvetna athygli sökum óvenjulegrar stærðar og fyrirferðar ..Hópuðust blaðamenn, ljósmyndarar og allskonar fólk að honum til að sjá hann betur og fá eiginhandaáritanir en svo segir frá í ágætri ferðasögu sem Óli Sigurgeirss. fógeti skrifaði um ferðina. Tók Loðfíllinn t.d. einu sinni innfæddan TAXA drifinn af reiðhjóli..eftir fáeina metra með hið íslenska flykki gafst bæði ökumaður og reiðskjóti þessi upp..Mönnum er hætt við að fá magakveisur í Indlandi og fékk Torfi snert af slíku. Sagt er að hann hafi gersamlega stíflað klósettið á hótelinu sem hann gisti þegar verst lét..
----------------------------------
Loðfíllinn býr núna giftur á Akureyri og á börn og buru..og unir þar hag sínum vel. Hann hefur lítið sést á kraftamótum undanfarið en ekki er ljóst hvort hann sé hættur að taka á því opinberlega..Tíminn leiðir það í ljós.. | | Hugleiing: K-E | Heimild Harði diskur magisters | Dags. 2---1-2004 |
|
| Vidurnefni! |
Ef þið eruð
með ábendingar þá er hægt að
senda póst til okkar. meira>>
|
| |
|