Vidurnefni!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánaðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
Linkar
Ofsinn Kanadarki
 
 
 
 

HJALTI ÁRNASON
Flestir íslendingar kannast við kappann úr sjónvarpi og fjölmiðlum mörg síðustu ár en það er sjálfur: HJALTI ÁRNASON. Það fennir fljótt yfir afreksslóðir í íþróttum og því er best að rifja það upp að fyrsti tonnarinn í kraftlyftingum á klakanum var Hjalti. Á Íslandsmótinu 1989 í Kópavogi tók hann í 125+, tölurnar: 380-245-375-1000 kg. og skjóðuþyngdin var rétt 140 kg. Í júlí 1991 á Stórmótinu á Akureyri náði hann sínum besta árangri fyrr og síðar. 145 kg þungur tók hann: 400-246-372,5-1017,5 kg og stóð þetta Íslandsmet í mörg ár sem mesta total íslendings eða þangað til Auðunn náði því. Magister skrifaði í Ársskýrslu kraft um árangur Hjalta: "ÚRSUSINN" var ægilegur, breiddin hrikaleg og aflið í toppi. 400 kg beygjan var skítlétt og virtist 10 kg inni..Met Versins í bekk féll og Hjalti reyndi við 250 líka, en deddið var toppur sem von var. Hjalti átti góðan feril í kraftlyftingum og keppti á alþjóðlegum mótum bæði erlendis og hér heima. Á Evrópumótinu á páver 1990 í Reykjavík náði Hjalti bronsi í súpernum með síðustu lyftu sinni í deddi þar sem allur salurinn öskraði með honum stöngina upp á eftirminnilegan hátt. Á eftir lagðist hann á pallinn og grét fögrum bronstárum fyrir alþjóð. Hjalti var einnig frægur aflraunamaður og tók þátt í mörgum kraftamótum. Fræknustu sigrar hans þar voru í hinni virtu MARK TEN keppni í Kanada 1986, liðakeppnina unnu þeir Jóni Páll, og einstaklingskeppnina þar vann Hjalti nokkrum árum síðar. Og PURE STRENGHT en það var liðakeppni sem þeir Maggi Ver unnu í kringum árin 1992-93 og var sjónvarpað um allan heim. Formaður KRAFT var Hjalti 1993-94. Hjalti hefur verið nefndur: ZETOR, ÚRSUS, DÚDDI FERG OG LEGEND.
 
Upp úr 1982 byrjaði Hjalti að æfa kraftlyftingar í Jakabóli. Á þeim tíma voru Zetor, Úrsus ofl. landbúnaðartæki mikið auglýst. Hjalti hífði upp í deddi 220 á sinni fyrstu æfingu og 240 hálfum mánuði síðar. Þegar Hjalti var að dedda þarna í "bólinu" þótti hann hafa gott torg og gat repsað endalaust þótt fyrsta lyftan væri þung. Menn töluðu fljótt um óvenjulegt DÍSEL POWER hjá Hjalta og í framhaldinu var hann kallaður ZETOR nokkrum sinnum. Á þessum tímapunkti voru ÚRSUS auglýsingarnar í miklum blóma og þótti það nafn hæfa betur hinum efnilega deddara og festist það við hann. Er uppnefnið það frægt að sumir halda að hann hafi verið altaris-skírður þessu dráttarvélarnafni. Kraftavinur Hjalta um áratugi Magnús Ver fór upp úr 1990 að kalla hann DÚDDA FERG og þá oftast DÚDDA. Hefur þetta verið einkagælunafn hans og notað við ýmis tilefni eins og: "Jæja DÚDDI minn þú verður þá bara að vinna mig næst" Á árunum 1990-93 reis afreksfrægð Hjalta hvað hæst og fór hann þá sjálfur að segja að hann væri orðinn LEGEND. Mönnum þótti þetta bráðfyndið og LEGEND nafnið var svoldið á sveimi. Hjalti lét jafnvel framleiða boli með áletruninni: Hjalti LEGEND og eru nú þessir frægu bolir alveg ófáanlegir. ------------------------------------------------------------ Árið 1984 var haldin í Paisley í Skotlandi landskeppni í kraftlyftingum á mili Skotlands og Íslands. Hjalti keppti þarna og var á miklum uppgangi. Í upphitun fyrir beygjurnar lét hann bera á bakið Sloans upphitunarvökva. Vildi þá svo illa til að það varð heldur mikið og rann þessi sterki vökvi alveg niður í rassboru..Hjalta sveið strax alveg rosalega og engdist um af kvölum. Reynt var að kæla görnina niður en gekk það illa þangað til Úrsusinn fór inn á klósett og settist í vask þar og lét vatn buna á sig. Þegar vaskurinn gaf sig var komið að fyrstu lyftu Hjalta og hann varð að mæta á pallinn..Í miklum ham fór það svo að Úrsusinn lyfti öllum þyngdum í Sloans æsingi og bætti sig í beygjum um 20 kg og tók 320 fremur létt.. ------------------------------------------------------------- Í Soest í Þýskalandi 1985 fór fram HM og EM unglinga. Hjalti var í Íslenska liðinu. Hann kom til keppninnar beint frá Kanada þar sem hann hafði í kraftakeppninni "Lous Cyr" sett heimsmet í 5 centimetra hnébeygju með 815 kg. Voru menn á mótsstað spenntir mjög að sjá tröll þetta. Úrsusinn var skráður í 125 en þar var líka bandaríkjamaður að nafni Daniel Passanella. Hann var glæsimenni mikið í sjón og með massann út um allt. Hjalti virtist sem smádrengur við hlið hans og er hann þó svo um sig sem mönnum er kunnugt. Úrsusinn gekk til Passanella af hugrekki miklu og spurði: "What is your best total?" Passanella leit á hann þýðingarmiklu augnaráði og svaraði: "Who knows babe?" Keppnin fór síðan þannig að Úrsus fékk brons og Passanella vann með 135 kg mun (905 í totali) og átti samt mikið inni. Nokkrum árum síðar tók hann á móti 467,5 í hnébeygju mestu þyngd sögunnar og 500 kg á æfingu. Örlögin tóku þá í taumanna og Passanella fórst í bílslysi á hraðbraut og varð páverheiminum harmdauði. ------------------------------------------------------------- Eftir að kraftaferli Hjalta lauk hefur hann starfað sem mótshaldari í fitness, kraftlyftingum og aflraunum og viðheldur frægð sinni á skerinu með því að koma fram í fjölmiðlum og er oft kynnir í sjónvarpsþáttum þar sem hann þykir snjall til tungunnar.
Hugleiing: Magister Cat | Heimild Magister Cat | Dags. 0---1-2004



Vidurnefni!
Ef þið eruð með ábendingar þá er hægt að senda póst til okkar.
meira>>
 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is