Vidurnefni!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánaðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
Linkar
Ofsinn Kanadarki
 
 
 
 

TILURÐ UPPNEFNA - JÓN GUNNARSSON
þá er komið að frægum kappa er óhætt að segja. -Jón Gunnarsson heitir meistarinn sá. Allur ferill hans þyrfti eiginlega sér heimasíðu, enda stiklum við hér á stóru um hann og uppnefni hans. Jón byrjaði að æfa kraftlyftingar um 25 ára aldur. Hann birtist í Jakabóli veturinn 1984-85 og snemma varð ljóst að þarna færi mikið efni. Hann hefur landað fjölmörgum Íslandsmeistaratitlum og Íslandsmetum í kraftlyftingum. Jón á um 20 núgildandi Íslandsmet. Hann hefur í hjáverkum orðið meistari bæði í sjómanni og vaxtarrækt. Jón hefur t.d.unnið til silfurverðlauna á EM í kraftlyftingum 1990 í 90 kg flokki í Reykjavík og brons vann hann á HM 1996 í Salzburg Austurríki, einnig í 90. Jón á öll Íslandsmetin í samanlögðu í flokkunum 82,5 (780kg)-90(855kg)-100(960kg)-110(970kg.) sem er mikið afrek. En bestu tölur Jóns eru: Hnébeygja 390, Bekkpressa 225, Réttstöðulyfta 361. Jón hefur verið kallaður: SJÓMAÐURINN, LITLI TURBÓ og BÓNDINN
 
Jón Gunnarsson fæddist 22-1-1959 að Efri Læk við Ölfus í Árnessýslu. Sem sagt að íslensku konungskyni kominn í bændastétt, en það mun eigi vera svo auðvelt hlutskipti eins og segir í hinni gömlu vísu:

Bændur líða blíðurán
bognir stríða gleði án,
þeirra bíður þreföld smán:
Þræla, skríða og biðja um lán...

Jón vann frá unga aldri langan og strangan vinnudag við að handmjólka kýr og rýja gamla og baldna hrúta. Drengurinn þótti snemma greipsterkur og þrjóskur í ákveðni sinni við hversskonar átök. Hann vakti líka athygli sem unglingur í uppsveitum Árnessýslu þar sem hann var ósigrandi í hinni gömlu þjóðaríþrótt sjómanni. Vegna átaka í sjómanni þar sem Jón sigraði m.a. á opinberu Íslandsmóti var fyrsta viðurnefnið sem hann fékk á sig: SJÓMAÐURINN. Þegar Jón fór að rífa í sig íslandsmetin í páver kom Óli Sveinss fram með viðurnefnið: LITLI TÚRBÓ. Hvorugt þessara nafna átti þó eftir að festast við hann. Eftir einhverja helgina kom Jón þreyttur til æfinga en þá hafði hann skroppið heim í heiðadalinn og hjálpað föður sínum með því að rýja 80 hrúta einsamall. Skúli Óskarss,smiðjusvín tók eftir ægiþreytu Jóns og spurði hann hverju þetta sætti. Þegar Jón hafði svarað því sagði Skúli að bragði: "Ja hérna, JÓN BÓNDI! Eftir þetta límdist nafnið BÓNDINN við hann eins og mönnum er nú kunnugt. Jón ílentist í borginni og er einn af eigundum Gym 80 og starfar þar sem þjálfari. Hann er enn að keppa á þessu herrans ári 2004 og varð Íslandsmeistari í bekk fyrr á árinu. BÓNDINN hyggst fljótlega taka á því í öllum greinum páversins og mun því enn um sinn gleðja sanna unnendur stáls og lóða með ógnarafli sínu...
Hugleiing: K-E (Magister Cat) | Heimild | Dags. 8---0-2004



Vidurnefni!
Ef þið eruð með ábendingar þá er hægt að senda póst til okkar.
meira>>
 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is