Vidurnefni!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánaðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
Linkar
Ofsinn Kanadarki
 
 
 
 

Baldvin Skúlason
Tíundi í röðinni er valinkunnur meistari: BALDVIN SKÚLASON. Í kraftlyftingasögu Íslands er hann án efa einn mesti bekkpressujöfur okkar. Baldvin varð mörgum sinnum Íslandsmeistari í bekk og methafi bæði í 100, 110 og 125 kg. flokkunum. Hann náði 4.sæti á Heimsmeistaramótinu í bekkpressu í Russelheim, Þýskalandi 1992 með 222,5 kg. í tíunni. Þegar þetta er ritað núna 2004 á Baldvin enn gildandi íslandsmet í þeim flokki 240 kg. í þrautinni sett 1993. Einna kunnastur er Baldvin fyrir það að hafa verið fyrstur íslendinga til að taka 250 kg. á bekk en það met setti hann í Garðabæ 1993 í 125 kg.flokki en Baldi vóg þá aðeins 112 kg. Baldvin hefur jafnan verið kallaður: BEKKURINN eða bara: Baldvin BEKKUR.
 
Eins og gefur að skilja hefur slíkur aflmoli sem Baldvin tekið þátt í ýmsu hvað krafta varðar. Þegar hann var hvað öflugastur á árunum 1992-94 tók hann þátt í mörgum kraftasýningum út um land allt með vestfjarðaskelfinum Njáli Torfasyni. Þar m.a. pressaði hann 40 kg.handlóð standandi 25 sinnum og lagðist undir bíla og lyfti þeim í samsvarandi bekkpressu sem er einstakt atriði og án efa mikið afrek. Einu sinni var Baldvin staddur í sumarfríi á Akureyri. Þar fór þá fram Íslandsmót í sjómanni. Baldi skellti sér í keppnina. Hann lagði allskyns tegundir af andstæðingum án þess að fara úr peysunni og komst í úrslit. Þar mætti hann mola nokkrum sem hafði einnig lagt sína keppinauta auðveldlega. Baldvin sá að þarna var verðugur andstæðingur og fór úr peysunni..Þannig var efri skjóða hans sýnileg að mestu..því þá var Baldi íklæddur molabol(hlýrabol)..Viðstaddir sáu andstæðing Baldvins hvítna upp og fölna allan vel þegar hann sá skyndilega gæðamassann fljóta fyrir framan sig..Handleggirnir á bekknum þöndust helbreiðir út á sviðinu og menn stóðu gapandi..Úrslitin sjálf voru nú formsatriði því gaurinn var farinn á taugum og Baldi smellti honum niður auðveldlegar en við mátti búast. Baldvin keppti ekki mikið í páverþrautinni sjálfri en á samt ágætar tölur í tíunni: 305 í beygjum, 300 í réttstöðu og 805 kg.í samanlögðu. Hann æfði deddið yfirleitt ekki en togaði á lyftingavísu í staðinn. Á Bikarmótinu á Patró 1992 þegar hann setti sitt persónulega met í deddi tók hann skringilega seríu: 200-250-300! Allt lauflétt. Var það mál manna að Baldi hefði þá lítt vitað afl sitt því hann átti mikið inni. Nafngiftin BEKKURINN eða Baldvin BEKKUR kom víst snemma á ferli hans. Hann byrjaði að æfa 1980 í æfingastöð Finns Karlssonar í Borgartúni og komu hæfileikar hans á bekk þar í ljós og menn fóru að kalla hann BEKKINN. Baldvin er nú sestur í helgan páverstein en er þó tengdur pávernum og kraftaheiminum með því að þar sem hann er járnsmiður hagur, er hann öðru hvoru að smíða bekki,handlóð og stadíf ofl. fyrir þá er vilja. Hann smíðaði t.d. handlóð fyrir fangelsið á Akureyri handa Kio Briggs forðum..Og Goldfinger hnébeygju-baklyftan er listasmíð Baldvins bekks...
Hugleiing: K-E | Heimild Harði diskur magisters | Dags. 6---0-2004



Vidurnefni!
Ef þið eruð með ábendingar þá er hægt að senda póst til okkar.
meira>>
 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is