Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

Hver var flæðimolinn?
Maðurinn í búningsklefanum snéri baki í hinn nýkomna. Maðurinn var talsvert flykki að sjá. Hann var vel yfir einn og áttatíu á hæð en þó ekki tveggja metra tré. Fæturnir nokkuð þykkar hvapkenndar stoðir sem stóðu furðu vel undir fargi ofurþunga af sérstakri tegund flæðimassa.
Musinn eða fjósið var mjúkt, fyrirferðamikið og vel alið. Þar fyrir ofan sást fremur þykkt bak en lausholda af áreynsluleysi. Þetta bak hafði einhverntíma "verið eitthvað" og tilheyrði ekki venjulegum sófajötni.
Hnakkaspikið hringaðist vinalega um hálsinn sem eðlilegt framhald af því er neðar var. Höfuðið breitt eins og koppur í gamalli baðstofu og lítið hárið snöggklippt.
Maðurinn hreyfði sig furðu snarlega svo dúnmjúkir síðubitarnir slettust til eins og bægsli á stórhveli. Stelling mannsins var nú þannig að sá nýkomni sá ekki enn í andlit hans. Þó mátti greina að hann var vel kviðsaður þegar frambygginguna bar við neðri hluta gluggans á móti, þannig að útsýnið skertist verulega.
Hinn nýkomni var enginn annar en Magnús Ver, og hann virti nú betur fyrir sér baksvipinn á manninum fyrir framan hann og spáði í hver þetta væri...
Stundin var Gym 80 snemma árs 2006. Maggi hugsaði nú málið í nokkrar sekúndur. Honum datt helst í hug að þarna færi stórfyrirferðin Magnús Korntop 250kg skjóða... En ef þetta væri hann þá sæist Loggurinn á svæðinu með ilmspreyið góða...
Aftur hreyfði maðurinn sig til. Strongest sá nú að þetta gat ekki verið Korntoppurinn. - Hver gat verið í sama flæðiklassa?
Maðurinn með þykktina, bægslin og þyngdina hreyfði sig nú enn meira. Hann snéri sér alveg við....
Eitt langt augnablik leið.
Og 4 sinnum Sterkasti maður heims horfðist í augu við fornvin sinn: Hjalta Úrsus!
Hugleiing: KE | Heimild Verið og Magister | Dags. 0---1-2006



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is