Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

Bænheitur berserkur
Það eru til margar sögur af íslendingum er hafa barið mann og annan og tekið útlendinga til bæna. Td. sögðum við frá hér á Kraftaheima vefnum frá klakverja er barði 10 pólverja í Stavanger í Noregi nýlega, en sú viðureign kom í norskum blöðum. Þeir pólsku flúðu undan okkar manni og þurfti löggan að stöðva berserkinn frá klakanum um síðir.
Prestar eru venjulega rólyndismenn og eigi frekir til vöðvaaflsins en inná milli þeirra leynast hörkunaglar eins og t.d. Gunnar Sigurjónss kraftaklerkur sem veit eigi afl sitt...
Íslensk saga greinir frá sérkennilegum presti á Vestfjörðum. Hann heitir Jón Ásgeirsson og var fæddur að Holti í Önundarfirði 1804 og dó í ágætri elli 1886 tæpra 82 ára að aldri. Svo var Séra Jóni lýst á bestu árum hans að hann hefði verið meðalmaður á vöxt, heldur grannvaxinn en beinamikill og með hinum hraustustu mönnum til burða og harðfengur við störf sín og svo fótfimur að fáir þyrftu við hann að reyna. Hann var fjörmaður svo mikill og svo snar að enginn maður stóð við honum í glímu fram á síðustu æviár. Engu að síður var prestur ljúfur og yfirlætislaus og prestsverk hans öll hin allra bestu, en honum þótti sopinn góður eins og var við hæfi í þá daga. Hann þótti og enginn veifiskati.
Svo er atburðum lýst í bókinni Kynlegir kvistir (Ævar R Kvaran 1964) er gerðust inn á Þingeyri við Dýrafjörð í kalsaveðri árið 1837 (aðeins stytt og breytt):
Hópur ölvaðra frakka eru með háreisti mikla fyrir utan verslunarbúðina í þorpinu. Þá kemur út úr búðinni íslendingur nokkur og hefur sá brennivínstunnu í fangi og fer létt með þótt væri við skál. Frakkarnir ráðast að honum og tekst að ná af honum tunnunni þar eð þeir koma honum að óvörum. Nokkrir frakkanna fara nú af stað með tunnuna en aðrir hefta för landans er hann ætlar að ná tunnunni aftur. Leiðist honum þóf þetta og ræðst á mannhringinn, hefur sig á loft og stekkur yfir hann. Við þetta espast frakkar mjög og sækja að íslendingnum. Grípur hann þá þann fransmann er næstur var hendi, taki góðu og hefur fyrir barefli og ver sig með honum um hríð. Reiðast nú frakkar mjög vegna þrjósku og fífldirfsku íslendings þessa er ekki var nema meðalmaður á vöxt, þótt furðulegir kraftar virtust með honum leynast.
Þarna var þá kominn enginn annar en Séra Jón Ásgeirsson sem barðist þarna einn við ofurefli liðs eins og hamrammur berserkur. Frakkarnir taka nú fram hnífa sína og sækja frekar að honum. Klerki þykir nú barefli það er hann hafði heldur óliðlegt, sleppir því og fær sér harðan lurk. Rennur þá á hann berserksgangur mikill. Sækir hann nú hart að frökkum og þjarmar svo að þeim að þeir leggja á flótta þótt 18 væru að tölu og yfirgefa herfang sitt. Íslendingurinn sækir fast eftir og rekur flóttann til sjávar. Frakkar komust við illan leik út í báta sem fljóta við land og róa lífróður út í skip. Höfðu þá margir þeirra hlotið sár og þurfti að bera 3 þeirra um borð. Skildi þar með frökkum og hinum rammeflda íslendingi. Ekki er þess getið af vitnum að prestur hafi særst í viðureigninni né verið teljandi þreyttur, því sama dag leggur hann á Ákftamýrarheiði og hafði brennivínstunnuna góðu á baki sér og kom með hana heim um kvöldið. Vart hefur frakka þá grunað er svo halloka fóru fyrir garpi þessum, að þar færi einn af drottins þjónum.....!
Hugleiing: KE | Heimild Kynlegir kvistir -Ævar R Kvaran | Dags. 0---1-2006



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is