|
|
| Sprittlampinn í Jakabóli |
Það eru til margar sögur úr gamla Jakabóli í Laugardalnum í Reykjavík. Þarna var mikið samfélag kraftamanna um nokkurra ára skeið. Magister æfði þarna bara einn vetur enda var hann Ármenningur á þeim tíma en KR ingar réðu yfir staðnum með Óla bólu og Bigga Borg fremsta í flokki. Flest íslensk "legend" í kraftasporti æfðu þarna í gamla daga og má þar nefna kappa eins og Jón Pál, Skúla Óskars, Frikka Jóseps, Halldór E. Sigurbjörnsson (HES), Hörð Magnússon, Sverri Hjalta, Hrein Halldórss, Erlend Valdimarsson og margar fleiri kunnar hetjur kraftaheimsins.
Einn af hinum spes karakterum bólsins var páverjaxlinn Hörður Magnússon sem á þeim tíma gekk undir nafninu Súlnasperrir. Fyrir utan það að vera þrælsterkur moli var Hörðurinn ótrúlegt æfingafól og magnaður félagi ásamt því að vera heiðursgestur í Klúbbnum um hverja helgi. Sá staður taldist vera "Mekka gleðinnar" í borginni á þessum árum á milli 1976-1986 eða svo.
Hörður hafði tekið undir sína leiðsögn máttlausan en frísklegan náunga sem starfaði sem barþjónn á skemmtistaðnum Sigtúni sem var einnig INN staður á þessum tíma. Hörður sem hefur alltaf verið duglegur að finna upp viðurnefni kallaði þennan félaga sinn Sprittlampann. Nafnið kom til af því að sagt var að Sprittlampinn væri virkur bruggari í hjáverkum og sæktu kraftamenn nokkuð í ljósið af þeim lampa þegar menn vantaði "lífsnauðsynlega" gleðigjafa....
Hörður pískaði Sprittlampanum út á æfingum sem var hlýðinn eins og gamli Gráni í túngarðinum. Aukaæfingarnar voru fólgnar í því að Hörður sagði ljúflega eins og honum einum er lagið: "Komdu með trefilinn Spritti, nú förum við út!"
Þá var farið út á planið og trefillinn sem var nokkuð langur og þykkur bundinn um háls Sprittlampans og hinn endinn festur í bíl.
Þannig var Spritti látinn draga bílinn þangað til hann gafst upp. En þjálfarinn sagði í viðurkenningartóni: "Þetta var fínt svona færðu hrikalega hálsvöðva maður!"
Helgina eftir svona æfingu fengu Jakabólsmenn frítt inn í Sigtún hjá Sprittlampanum.
Stundum fékk Sprittlampinn að kenna á því fyrir að vera strik og súrefnisþjófur á æfingum. Þegar menn voru að fara að taka hrikalegar beygjur skipaði einhver molinn honum að halda niðri í sér andanum á meðan á lyftu stóð svo ekkert súrefni færi til spillis....Spritti hlýddi því og varð manna glaðastur þegar bæting tókst undir þannig kringumstæðum og hann gat farið að anda aftur...
Það er málið sko, menn kölluðu ekki allt ömmu sína í Jakabóli hinu forna get ég sagt ykkur...
| | Hugleiing: KE | Heimild Sir Magister Cat | Dags. 8---0-2006 |
|
|