|
|
| Fjórði maðurinn |
Bar í Texas, rétt utan við þjóðveginn. Liðið er á kvöldið. Þyrnirunnar fjúka um skraufþurra jörð og þrumuveður í aðsigi. Árið í kringum 1981.
Gestir sitja þungt í sætum. Glösin hálffull. Allir virðast vera að bíða eftir einhverju óljósu sem hangir í loftinu.
Barhurðin opnast.
Inn gengur maður. Viðstaddir líta upp úr glösunum. Maðurinn fyllir út í dyragættina. Ljós yfirlitum líkt og norrænn víkingur. Breiður eins og björn gengur maðurinn að barborðinu og pantar sér dularfullan drykk. Gengur síðan með drykkinn að auðu borði úti í horni og sest þannig að bakið snýr að veggnum. Hann horfir vökulum augum fram í reykmettaðan salinn.
Þarna var kominn Guðni Halldórsson kúluvarpari af Íslandi. 125kg skjóða sem tók 220 í bekk á kjötinu einu saman.
Eftir nokkra stund hvarfla augu gestanna frá þeim nýkomna. Vindurinn gnauðar stöðugt fyrir utan og virðist vaxandi.
Barhurðin opnast aftur.
Inn stígur maður. Greinilega norrænn jötunn en þó heldur meiri um sig en sá fyrri. Herðarnar gnæfa eins og tindur Vatnajökuls á jötni þessum. Augu gestanna titra og stækka þá er sjón þessa ber við.
Komujötunn gengur að borðinu hjá hinum fyrri íslenska víking og fær sér þar sæti og fer vel á með þessum tveimur mönnum.
Þarna var kominn Óskar Jakobsson 130kg þungur moli og vel hávaxinn kringlukastari og Olympíufari sem tók 230kg á bekk á kjötinu án þessa að blikna.
Að lokum víkja augu gestanna frá molunum tveimur og hvarfla um glös og veggi sem áður.
Í þriðja sinn opnast barhurðin.
Yfirgengileg íshafsskjóða birtist. Enn stærri og meiri allur en hinir tveir fyrri jötnar. Meitlaðir drættir setja svip á mikilúðlegt andlit þessa nær tveggja metra manns er minnti helst á bergrisa. Það þyrmdi yfir gestina þegar moli þessi gekk þungum stórkallalegum skrefum inn í krána. Hann gekk rakleiðis að borðinu hjá hinum tveimur norrænu jötnum og fær sér þar sæti og var greinilega vel tekið.
Var þarna kominn enginn annar en Hreinn Halldórsson Evrópumeistari í kúluvarpi. 135kg skjóða sem tók 240 í bekk á kjötinu án þess að roðna.
Ólýsanlegur órói grípur gesti staðarins er þeir hafa barið augum þennan magnaða jötunn frá landi elds og ísa. Andrúmsloftið verður spennu þrungið. Þvílíkir komumenn hafa aldrei sést þarna áður. Gestirnir bíða í ofvæni.
Hvenær kemur hann?...Hvernig mun hann líta út?...
Vindurinn fyrir utan ýlfrar hærra en áður. Kaldur súgur fer um krána. - Hvenær kemur maðurinn? Hvað þurfa þeir að bíða lengi eftir FJÓRÐA manninum?....
Þeir bíða enn...
| | Hugleiing: KE | Heimild Magister | Dags. 7---0-2006 |
|
|