Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

Hótel Varðborg rústað
Nóttin var björt og blíð og golan lék um vanga næturhrafna þeirra er lögðu leið sína um miðbæ Akureyrar í maí 1986 fyrir réttum 20 árum.
Hótel Varðborg virðulegt klassahótel sómdi sér vel rétt við skemmtistaðinn Sjallann þar sem bæjarbúar og kraftlyftingamenn hvaðan eina að landinu lögðu leið sína eftir vel heppnað Íslandsmót þar sem þandir vöðvar höfðu fyrr um daginn barist hatrammlega við stálguðina og sett fjöldan allan af metum.
Skyndilega voru hin venjulegu næturhljóð rofin með brothljóði miklu. Rúða úr einu herbergi hótelsins sundraðist út í myrkrið. Tryllingslegt öskur fylgdi á eftir. Molinn inn í herberginu sá ásjónu sinni bregða fyrir í stórum speglinum. Hnefinn fór ósjálfrátt á loft og spegillinn splundraðist í þúsund mola....Gestir hótelsins byrjuðu einn eftir annan að vakna upp með andfælum..Rústunin var hafin..
Rotarinn Baldur Borgþórsson hafði fyrr um daginn tekið 300 létt í beygjunni en fengið það ógilt og kærastan verið með stæla. Dagurinn var því ekki sem bestur þrátt fyrir gullmedalíu og nóttin var óvinur...Kærastan var farin á fund gleðinnar..hvar var hún? Það tók því ekki að opna herbergishurðina...eitt tilþrifamikið spark braut hana í tvennt og haldið var fram á ganginn....Var kærastan að flengjast á í herberginu á móti?....Rotarinn þandi latsana og stökk til...Hurðin var á augabragði brotin í mél eins og eftir hryðjuverka árás. Konsertmeistari Íslands Frú Guðný Guðmundsdóttir og flengherra hennar hrukku upp í rúminu eins og skíthræddar mýs..hurðarbrotin þeyttust á þau og augun stóðu á stilkum.....Rotarinn sá að kærastan var þarna ekki...angurværir tónar næturinnar voru horfnir konsertmeistaranum.
Hótelið lék á reiðiskjálfi....Hatrammur kappinn stökk niður á næstu hæð..einhversstaðar hlaut kærastan að vera! Aha! Þarna voru herbergisdyr opnar!...hurðin slapp ósködduð þegar Rotarinn þeyttist inn í herbergið...gesturinn miðaldra ríkisbubbi akfeitur og ósjálfbjarga rétt náði að forða sér og skríða undir rúmið þar sem hann fannst í losti síðar...Engin dama þarna. Best að kíkja út á svalir. Glerhurð? Skiptir ekki máli. Rotarinn hreinlega æddi í gegnum glerið í yfirgengilegum berserksgangi á þeirri stundu þegar allir gestir hótelsins voru vaknaðir og lafhræddur næturvörður sem hafði haft vit á að láta ekki sjá sig hringdi á lögguna.
Glerbrotin hrundu niður á strætið þegar hinn reiði moli stökk eins og ekkert væri af svölunum niður á götuna. Alveg ómeiddur þótt hann hafi brotið spegil með berum höndum og ætt í gegnum glerhurð. Rotarinn hristi hausinn eins og mannýgur tarfur. Þar sem hann hafði komið niður var rúðan að matsalnum. Þetta var helvítis bras sem hann hafði fengið í kvöldmat! Stálnefinn hófst á loft og örlög rúðunnar voru ráðin. Glerbrotahljóðið glumdi um götuna og mannleg vitni hurfu strax á braut. Lífsvilji manna er alltaf sterkur.
Áfram var haldið.... Þarna var Búnaðarbankinn. Framsóknarmenn hafa lengi níðst á þjóðinni og okurvextir sliga alþýðuna. Rotarinn reif upp úr gangstéttinni 30kg hellu sem var eins og fis í höndum hans....hellan flaug í gegnum risastóra og þykka rúðuna eins og ekkert væri og eina 15 metra inn í bankann...var þetta mannlegt afl?...
.Haldið var lengra niður í miðbæ en þá fór vígamóðurinn að renna af kappanum og þegar allt lögguherlið bæjarins kom var næturhetjan hinn spakasti.
Á meðan Rotarinn svaf úr sér í steininum dreymandi óvinveittar hurðar og rúður, hélt kærastan áfram að dansa í dúr og moll við Magister og aðra mola í Sjallanum...langt undir morgun...
Hugleiing: KE | Heimild Sir Magister Cat | Dags. 5---0-2006



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is