|
|
| Vígreifur Hæstaréttarlögmaður |
Fyrir einhverjum árum ætluðu þeir Gunnar Ólafsson sem í þá daga var kallaður Bart og síðar Skemmujarl og Kári köttur (Magister Cat) á stórmót í páver í útlöndum...
Ákveðið var m.a. að tala við Jón Egilson Hæstaréttarlögmann með meiru um fararstyrk, en Jón hefur alltaf haldið sér í formi...og fylgst með því hvað lyftingastrákarnir væru að bralla, enda með ólæknandi kraftadellu og mikill andans maður. Hann hefur gripið í stöng lengi og var í gamla daga aldrei kallaður annað en John PUMP því hann var manna harðastur að pumpa bekkinn og bysepinn í anda læriföður síns Óla bólu sem einnig er frægur bekkari og lögfræðingur eins og menn vita.
Úr verður að Gunni fór á skrifstofu Jóns í Knarravogi til að athuga með undirtektir hjá hinum virta lögmanni.
Bartinn mætir síðan um 2 leytið inn á skrifstofu Hæstaréttarlögmannsins og spyr einkaritarann hvort Jón sé við? Honum er vísað inn á kontor og blæs tvisvar þrisvar eftir tröppurnar og ber erindi sitt upp við lögmanninn. Jón spyr hress í bragði hvað þeir vilji mikinn aur í styrk til fararinnar...Gunni sagði að allt skipti máli og svona 10.000 kall væri vel þeginn. John PUMP brosti kankvíslega og sagði: "Ég vill endilega styrkja ykkur strákar og við skulum hafa það 20.000!"
Jón skrifaði ávísun snarast og stóð síðan upp. Veifaði ávísuninni framan í Gunna og sagði skælbrosandi :...."En þú verður að ná henni af mér.....!!" Taka má fram að jón hefur þótt liðtækur í júdó
og var með risa séfferhund inná skrifstofu sem seinna varð frægur fyrir að háma í sig einhvern puddle hund sem voða fín frú átti og var því slegið upp í æsistíl af DV.
Jarl vor sá að ekki var hægt að bregðast í þessari stöðu og stekkur með það sama á lögmanninn.... Upphófust þar mikil glímutök og læti ... Forstjórastóllinn datt um koll og skrifborð Jóns fór upp að vegg......Pappírar flugu um allt og séfferinn hljóp gólandi og geltandi hringi í kringum áflogahundana og vissi hreinlega ekki hvort hann ætti að ráðast á aðkomumann og bíta hausinn af honum eður ei....
Einkaritarinn kom í hurðina með skelfingarsvip og öskraði skíthrædd hvort hún ætti að hringja á lögregluna? Áður en því var svarað tókst Gunna til allrar hamingju að koma góðu fantataki á lögmanninn.... Lagðist síðan ofan á hann og skrúfaði hann niður í gólfið......
Jón hló bara og sagði....DJÖFULL ERTU STERKUR! Rétti síðan sigurvegaranum ávísunina.......
Á leið niður tröppurnar þakkaði Jarlinn æðri máttarvöldum fyrir að vera skjóða upp á 150+ því annars hefði þessi ferð án efa farið illa....
| | Hugleiing: KE | Heimild Sir Magister Cat | Dags. 2---1-2005 |
|
|