Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
- Af tveimur morðtilraunum við Magister

Í Sænska frystihúsinu í Reykjavík æfðu lyftingamenn ásamt sterkum frjáls íþróttamönnum kringum árin 1974-76. Það gekk á ýmsu hjá Magister þarna og einu sinni lét Óli fógeti (Af frægri festu og dáð, eins og segir í gamalli vísu) sækja lögregluna á hann til að henda honum út vegna æfingagjalda skuldar.. Frægar senur voru einnig átök Magisters við Tobba trúð og Guðna Halldórsson kúluvarpara.
Einn daginn var Magister að taka topp bekk með 80kg en Magister vigtaðist á þessum tíma um 56kg. Kemur þá ekki að Þorvaldur Stefánsson sem kallaður var Tobbi trúður og ýtir stönginni niður á kassann á Magister og heldur henni þar. Tobba fannst þetta víst voða sniðugt en Magister vatt sig aftur einhvernveginn á bekknum með fæturnar saman og sparkaði í brjóstið á Trúðnum sem skall með hausinn í vegginn fyrir aftan og féll síðan rotaður niður. Magister sem var upp á bætingu kláraði síðan lyftuna. Þetta gerðist allt svo hratt að æfingafélagirnir tóku varla eftir þessu fyrr en Tobbi raknaði úr rotinu og brjálaðist þá gersamlega. Hann tók upp nokkur 2,5 og 5kg lóð og öskraði: "Ég drep hann, ég drep hann!"
Síðan hóf hann að kasta lóðunum í átt að Magister. Á þessum árum var Magister kattliðugur og snöggur og tókst á Matrix vísu að forða sér frá lóðunum sem flugu um salinn. Tvö eða þrjú lóð lentu í einum veggnum og eitt í gluggakistu sem kvarnaðist úr eins og eftir byssuskot. Æfingafélagirnir stukku þá til og yfirbuguðu Trúðinn sem róaðist svo um síðir.

Í eitt skiptið voru á æfingu Magister, Skúli Óskarss, Guðni Halldórsson og Gvendur Sig og nokkrir aðrir. Guðni sem var öflugur kúluvarpari og kastaði einhverntíma síðar um 18 metra var nokkuð mikil skjóða, vaxinn eins og skógarbjörn eða górilla um 115-120 kg og forn í skapi á köflum. Hann lyfti nú ekki mikið miðað við útlit og fann Gvendur hið frábæra nafn á hann: MÁTTLEYSISHRÚGAN.
Fyrir aftan lyftingapallinn var hliðarherbergi með litlum vaski á veggnum. Eftir páverklín sett fer Guðni þar inn og fær sér að drekka undir vaskinum. Kemur þá Magister þar að og tekur um aftan verðan hálsinn á molahrúgunni og ýtir andliti hans meira undir vatnið... Heldur honum síðan þar smástund eða þangað til Magister fann að Guðni var að tryllast og sleppti honum þá. Þetta var nokkuð djarft tiltæki af kattartitti að vera. Magister forðaði sér síðan í burtu. Strax á eftir kemur Guðni í dyragættina og hristir sig og skekur eins og grábjörn á árbakka og öskrar yfir salinn:" ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!!"
Augun skutu gneistum sem hefðu getað drepið alla venjulega ketti. Magister gerði nú þá vitleysu í stað þess að forða sér út úr húsinu hljóp hann inn í búningsklefa því hann hélt að strákarnir næðu að stoppa Máttleysishrúguna í tíma. Það var öðr nær, Guðni æddi óður á efir Magister og náði honum svo þar sem Magister komst í sjálfheldu í búningsklefanum. Guðni þreif í hálsmálið á Magister með annarri hendinni og reiddi hina til höggs um leið og hann æpti tryllingslega: "Þú hefðir getað brotið í mér tennurnar helvítis fíflið þitt!"
Magister datt ekki í hug að biðja sér vægðar heldur ákvað að taka örlögum sínum með sæmd. Í sama mund kemur Skúli þarna að og þrífur í hendina sem hrúgan hafði reitt til höggs og segir: "Eigum við ekki að láta þetta duga Guðni?" Síðan togaði Skúli hann í burtu og barg þannig lífi Magister Cat....
Hugleiing: K-E | Heimild | Dags. 1---1-2005



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is