|
|
| SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU | Árið 1981 fór fram Evrópumótið í páver í bænum Parma á Ítalíu.
Við klakverjar stilltum upp fullu 10 manna liði. Þar á meðal voru ýmsir frægir kappar eins og Skúli Óskarsson og Jón Páll ofl. Það gerðist margt eftirminnilegt í þessari ferð og efni í nokkrar sögur eins og t.d eftirfarandi.
Skúli var í hroðalegu formi og hafði fyrir mótið sett met í skjóðuþyngd upp á 85kg með massann út um allt svo hetjan þurfti að létta sig ofan í 82,5 kg flokkinn.
Við vigtun reyndist Skúli of þungur og reyndi nú allt til að létta sig um það sem upp á vantaði.
Hann gat ekki migið dropa meira svo hann afréð að skíta einhverju ef hægt væri.
Magister Cat og Vikki bangsi voru þarna nærri þegar Skúllinn brá sér inn á klósettið í íþróttahúsinu.
Eftir örskotsstund kemur Skúli æðandi út aftur og segir óðamála: " Það er ekkert klósett það er bara gat í gólfið sem á að skíta í!"
Magister og Bangsi litu þarna inn og störðu líka furðulostnir á þetta fyrirbrigði sem var bara myrk og skuggaleg hola sem beið eftir því að gleypa matinn sinn....
"Það er ekkert um að ræða Skúli sagði Magister glottandi, þú verður bara að láta þig hafa þetta og vona hið besta!"
Síðan fór Skúllinn aftur inn og þeir Magister og Vikki stóðu vörð fyrir utan á meðan því ekki var hægt að læsa klósettinu.
Verðirnir biðu þarna sallarólegir nokkra stund og sögðu á meðan nokkra óprenthæfa brandara um athafnir meistarans inn á klósettinu í bardaganum við gatið ógurlega...
Að lokum kemur Skúli út aftur allur löðursveittur og segir: "STRÁKAR ÉG VARÐ AÐ FARA Í SKÍTBEYGJU OG ÞAÐ KOMU BARA TVÖ SPÖRÐ!!!"
Þetta kostaði nokkra hlátra og svo fór skítbeygju-meistarinn aftur í vigtun og undrið gerðist: Hann náði vigtun! Slétt 82,5kg!
Þegar að keppninni svo kom gaf Skúli í botn í beygjum og fór með allar í gegn á glæsilegan hátt og endaði á Norðurlandameti 320 sem stendur ennþá sem Íslandsmet... Og þó nokkuð lengi eftir þessa Ítalíuferð var talað um skítbeygjur í glettilegum stíl... | | Hugleiing: K-E | Heimild | Dags. 0---1-2005 |
|
|