Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

Ofurátök á Indlandi
OFURÁTÖK Á INDLANDI Af hvítu hörundi hins norræna víkings þeyttust svitadroparnir út í kæfandi loftið. Æðarnar tútnuðu út og hver sin og hver taug var þönd til hins ítrasta. Vöðvarnir nötruðu þegar heljarþungt fargið lyftist hægt og hægt frá gólfinu...Aldrei hafði nokkur maður einn getað bifað þessari styttu... þangað til núna að Ofsinn frá Íslandi tók á henni...Áhorfendur voru stjarfir. Aldrei höfðu þeir séð annað eins... Stundin var borgin Delhi á Indlandi í september mánuði 1994. Nokkur hópur íslendinga var þarna staddur á Heimsmeistaramóti unglinga í kraftlyftingum. Þarna voru þeir Jóhannes Eiríksson Omegakraftur Auðunn Jónsson og svo hinn skrautlegi Ofsi Völundur Þorbjörnsson sem keppendur, en í gæðaúrvali aðstoðarmanna voru þeir: Gunnar Ólafsson bart og verðandi Skemmujarl og Grétar Hrafnsson griss. Þeir dvöldu í landinu í rúmlega viku innan um fátækt, ólykt, skít og heilagar rottur. Hvar sem hópurinn fór vakti hann mikla athygli en Grissinn þó mesta þar sem strákarnir kynntu hann jafnan sem heimsmeistara... Trúðu indverjarnir því þótt Griss væri á þessum tíma jafnvel meiri fitularfur en flæðimassi. Grissinn fílaði þetta í botn og var hinn glaðbeittasti og gleymdi því alveg að hann ætti 500 í totali... Einn daginn var farið í verslunarleiðangur. Rákust þeir þá á gamla og stóra minjagripaverslun. Þar inni sá Ofsinn stærðar líkneski af fíl höggvið í dökkan harðvið. Var þetta glæsilegur gripur og greinilega mjög þungur. Kaupmaðurinn sem var örmjór tittur með slungið augnaráð sá í Ofsanum einhverja veiðivon og sagði líkneskið kosta 50.000 dollara. Það var auðvitað fullmikill biti að kyngja svo Ofsinn spurði hvort hann mætti bara ekki eiga styttuna ef hann gæti borið hana út úr búðinni? Slynga augnaráðið brosti nú góðlátlega og sagði að það hafi þurft 6 menn til að bera líkneskið inn í búðina en honum væri velkomið að reyna að vinna til þess að eignast fílinn... Ofsinn gekk að þessu tilboði undir glottuleitum indverjunum sem komu þarna að eins og flugur að ljósi til að fylgjast með...Þá erum við komin að upphafi þessarar sögu þegar Ofsinn Völundur Þorbjörnsson barðist hatrammlega við að lyfta styttunni...Eftir nokkurn tíma og heljarátök kom hann fílnum vel yfir hné...Brosin á indverjunum fölnuðu og angistarsvipur færðist yfir tálgað andlit kaupmannsins. Í sama mund og Ofsinn ætlaði að labba af stað með styttuna missti hann takið og varð að láta hana niður aftur. Þegar ákafur Ofsinn gerði sig líklegan í aðra tilraun fór kaupmaðurinn að babla eitthvað óðamála á mun verri ensku en áður...Skilja mátti að tilboðið góða stæði ekki lengur. Í þess stað gaf hann Ofsanum litla útgáfu af styttunni og kvaddi svo íslendingana með virktum og þótti mikið til þessarar heimsóknar koma. Þegar strákarnir löbbuðu út úr búðinni sagði Ofsinn þeim að hann hefði alveg getað tekið styttuna... Hann hefði bara séð að í raun og veru hefði verið alltof mikið mál að koma henni heim til klakans...!
Hugleiing: KE | Heimild Sir Magister Cat | Dags. 8---0-2005



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is