|
|
| JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU | Gym 80 er sögufrægasta gym landsins ásamt Steve Gym. Jón Gunnarsson bóndi ræður öllu þar og þjálfar og hjálpar þeim sem vilja. Að undanförnu hefur Guðjón Gíslason Austfjarðatröll verið að hel taka á því með Bóndanum sem hefur verið að gefa Gaua hin ýmsu páver ráð. Þar sem Gaui ætlar að keppa á kraftamótum sumarsins hefur hann aðeins verið að stelast í 8 repsa pump og Bóndinn tryllst...
Um daginn voru þeir í hrikalegum anda og blómstraði geðveikislegur fílingurinn af þeim svo aðrir í stöðinni hrifust með ..
Þegar þeir voru komnir í fótbekkinn spyr Gaui Jón hvort hann eigi ekki að taka bunkann 15 reps? " Jú, jú, það er mjög jákvætt fyrir strongmannið! " svaraði Jón.
Þannig byrjar Gaui að pumpa. Þegar hann er kominn í 8 reps tekur hann eftir því að Bóndinn er allur orðinn rauður og geðveikur á svipinn og farinn að öskra að hann eigi að stoppa strax! Austfjarðatröllið var hinsvegar kominn í ham og hélt áfram að pumpa sín 15 reps þannig að svitinn sprengdist út um allt svæðið.
"Gaui! Gaui!, hvað ertu að gera asninn þinn ertu klikkaður?" öskraði Jón á hann.
Þegar Gaui var búinn með settið spurði hann Bóndann hver djöfullinn gengi að honum....Jón leit þá á hann með þrumusvip: " Hvað ertu að gera krakka ormur, við gerum aldrei meira en 5 reps hérna!! "
Austfjarðatröllið gapti en kom svo út úr sér: "En Jón, ég spurði þig hvort ég ætti ekki að taka 15 reps upp á úthaldið..!"
"Heyrðu Gaui, " sagði Bóndinn þá og lét sér hvergi bregða.. "EF ÞÚ ÆTLAR AÐ VERÐA STERKUR ÞÁ GERIR ÞÚ BARA ÞAÐ SEM ÉG SEGI ÞÉR AÐ GERA!! "
- Hvernig er hægt að mótmæla svona manni eins og Jóni bónda?
| | Hugleiing: KE | Heimild Magister Cat | Dags. 6---0-2005 |
|
|