|
|
| SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson | Sagan af fundum mínum við KAZ.
Þar sem nokkrir útvaldir hafa heyrt af fundum mínum við KAZMAIER hef ég verið beðin um að koma henni hér á framfæri. Það var í Nóvember 2001 sem að ég fór ásamt öðrum Íslenskum sjúkranuddara á þriggja daga ráðstefnu um íþróttameiðsli við lóðaþjálfun og meðhöndlun þeirra. Ráðstefnan var haldin á fínu hóteli í útjaðri Toronto og voru gestafyrirlesarar m.a. Dorian Yeats, Bill Pearl og Bill Kazmaier. Ýmislegt fróðlegt var á ráðstefnunni en mig langaði mest að sjá kappana þrjá og fyrstur var Dorian með einn leiðinlegasta fyrirlestur sem ég hef farið á, karlinn skroppinn saman í ekki neitt og fannst engum neitt til hans koma. Næstur var Bill Pearl og sá hreif með sér salinn, þvílíkur höfðingi og ómetanlegt að hitta hann. Síðastur kom svo KAZ, og þvílíkur maður, 150kg af massa og fitulaus með öllu. ótrúlegt form á manni sem var að detta í fimmtugt. Alla vega fyrirlesturinn byrjaði, og það var vel af andanum í karlinum, talaði um ferilinn framan við rúmlega þúsund manns og tók spurningar inná milli, helst var spurt um þjálfun og mér fannst karlinn helst vera gera grín að liðinu með svörum sínum, hann vildi greinilega ekki gefa frá sér leyndarmálin sín. Ein spurning kom úr salnum um lyfjanotkun og hann svaraði beint, "þið eigið væntanlega von á einhverju bull svari um að ég hafi aldrei notað lyf eða ekki þurft á þeim að halda en ef ég á að seigja ykkur alveg eins og er þá getum við líkt þessu við kerti, með lyfjanotkun kveikið þið á kerti sem getur táknað heilsu ykkar og því meira sem þið notið því hraðar brennur kertið ykkar upp. Ég kveikti snemma í mínu kerti, stuttu seinna var ég með logandi á báðum endum og allann ferilinn var ég að reyna að kveikja í miðjunni líka"
Ekki ræddi hann meira um lyfjamál en hélt áfram að messa yfir liðinu hversu ótrúlega feril hann hafði átt og að enginn hefði komið nálægt honum í keppni. Hér gat ég ekki setið á mér lengur og rétti upp hönd, mín spurning var að sjálfsögðu "what about all the time Jon Pall tought you a lesson" karlinn gnísti tönnum og svaraði mér því að Jón hefði ekki átt nálægt því eins mikið í totali. Ég leyfði karlinum að halda aðeins áfram þangað til að hann sagðist hafa verið sterkasti maður heims í tuttugu ár, nú lét ég félaga minn rétta upp hönd, Bill hljóðnaði og benti á hann og þá kom ég með næstu spurningu "are you forgetting about the four years Jon Pall won the title and the other four Magnusson won it ? i recall you being in most of those competitions" Ég fékk hvasst augnaráð frá ofurmenninu og ef ekki hefðu verið þúsund vitni í salnum væri ég líklega ekki að skrifa þessa grein í dag. hann svaraði "true strength is hard to measure" ég heyrði að það var kliður í salnum og greinilegt að þessar staðreyndir voru ekki almannavitneskja þarna í ameríkunni.
í lok fyrirlestrarins tók hann teflon húðaða steikingarpönnu, setti skaftið milli lappanna á sér, vinstri hönd uppí loftið og með hægri krumlunni rúllaði hann pönnunni upp eins og pönnuköku, það var tilkomumikil sjón.
þegar fólkið stóð upp togaði félagi minn í mig og vildi endilega fara út um annan útgang en KAZ en ég tók það ekki í mál, við eltum karlinn út á gang þar sem hann var að gefa eiginhandaráritanir, ég gekk að honum, rétti fram hendina og kynnti mig sem Volundur Thor og væri frá Íslandi og hefði þekkt Jon Pall og væri vinur Magnusson, ekkert fékk ég handabandið heldur pikkaði hann í kassann á mér eins og kennari við óþekkan nemanda og hóf upp mikin fyrirlestur um hversu miklu sterkari hann væri en Íslendingarnir tveir, einnig sagði hann mér um World Strongest "it was all rigged for them" ég brosti mínu stríðnislega brosi og kvaddi. Af einhverjum völdum held ég að ég sé ekki velkomin á KAZ fyrirlestur aftur.
Ofsinn.
| | Hugleiing: KE | Heimild Völundur Þorbjörnsson | Dags. 3---0-2005 |
|
|