|
|
| JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN | Það var einn góðviðrisdag sumarið 1981 að þeir félagarnir Jón Páll Sigmarsson og Stefán Svavarsson (Spjóti) lágu afvelta í koju eftir hrikalegt lambalærisát. Þeir leigðu saman íbúð í Efstasundi rétt við kaupmanninn á horninu sem lifði á óheyrilegu áti þeirra félaga um tíma. Áður en þeir lögðu sig hafði Jón sagt Spjóta að hann ætlaði sér að verða sá sterkasti á þessum hnetti..Kirkjuklukkurnar í Langholtskirkju hringdu inn andlegt fóður en þeir vinirnir voru þá þegar sofnaðir í ómælanlegum bætinga-anda þar sem hrikalegar páver tölur voru efstar á baugi í draumheimum...
í svefnrofunum rumskaði Spjóti við að dyrabjallan hringdi látlaust. Nánast afvelta af lambasteik rétt komst hann úr koju og opnaði dyrnar. Fyrir utan stóð þá mikilfenglegur moli: Óskar Jakobsson olympíufari og þjóðhetja,margfrægur kringlukastari og kúluvarpari auk þess sem hann átti yfir 230 kg á bekk á massanum. "Hvar er Jón Páll?" spurði hann og fyrr en varði ruddist hinn 140kg jötunn sem var greinilega í glasi, framhjá Spjótanum sem rétt náði að forða sér undan ferlíkinu.
Óskar þrammaði inn í herbergið með látum þar sem Jón Páll svaf réttlátum bætingasvefni. Jón hrökk upp með andfælum og stökk síðan eldsnöggt á fætur. "Ég ætla bara láta þig vita það Jón Páll að þú ert ekkert sterkari en ég!" hvæsti gestamolinn og benti á Jón með tröllslegum lúkunum. Jón hló þá hátt og mikið. "Ég er nú enginn frjálsíþróttatittur sem kastar einhverju kúludrasli eða kringlu sem getur bara svifið í hávaðaroki" -"Ég er maður stálsins, aflsins og lóðanna!" svaraði Jón og lét sér hvergi bregða.
Olympíufarinn varð nú öskureiður og ógnaði Jóni með hnefunum. " Ég er miklu öflugri en þú, Komdu bara ef þú þorir!" hvæsti kastarinn og bjó sig undir að slá Jón þar sem þeir voru komnir í forstofuna. Jón dansaði á tánum í kringum Óskar og hló stöðugt að honum. Á bak við hláturinn sá Spjóti leiftur í hörðug augum Jóns en ofur þjálfaður skrokkurinn bjó yfir hrikalegri snerpu og sprengikrafti. Svifaseinn kastarinn komst ekki nálægt Jóni með neitt högg sem sveif í átt til hans.
Allt í einu steig Jón eldsnöggt fram með annan fótinn en spyrnti hinum aftur eins og karatemeistarar gera. Með krafti og hraða tígursins gaf hann Óskari gífurlegt vinstri handar högg beint á smettið. Það small svoleiðis í andliti kastarans þegar hnefi Jóns grófst inn í það. Þvílikt högg. Um leið rifnaði eins og léreftstuska teppið sem Jón spyrnti í. Hinn 140kg moli sjálfur Óskar Jak. sveigðist aftur eins og boginn kengur og féll síðan eins og spýta á gólfið. STEINROTAÐUR. "Hva,hváði Spjóti, þú rotaðir hann Jón!!"
"Það var ekkert annað að gera" sagði meistarinn hinn rólegasti og nuddaði á sér hnefann. Eftir smástund rankaði Olympíuhetjan við sér og snaraðist beint út. Hann kom síðan ekki aftur í heimsókn til þeirra páverfélaganna.
| | Hugleiing: KE | Heimild Stefán Spjóti Svavarsson | Dags. 3---0-2005 |
|
|