Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Bubbi Morthens æfði lyftingar í Ármannsheimilinu við Sigtún kringum árin 1978-79. Á þessum tíma æfði Magister oft með honum undir stjórn lyftingameistarans Guðmundar Sigurðssonar. Þegar þessi saga gerist bjó Bubbi ásamt sambýliskonu sinni Bogey Hreiðarsdóttur heima hjá Guðmundi og Hrönn konu hans í Miðtúni í u.þ.b. hálft ár eða svo. ( 5 ára samband sitt við Bogey sem var fyrsta konan sem Bubbi bjó með og dvölina heima hjá Gvendi hefur Bubba láðst að geta við ævisagnaritara sína, hvernig sem á því stendur!) Bæði Bubbi og Kári Elís. (Magister Cat) nutu leiðsagnar Gvendar í hvívetna bæði til lyftinga og andlegra framfara. Bubbi þótti nokkuð gott efni í lyftingum og sýndi mikinn áhuga og skemmtilega takta. Hann var þá þegar farinn að spila talsvert á gítar og syngja og var aðalmaðurinn í partýum heima hjá Gvendi. Og nokkur laga hans á Ísbjarnablús samdi hann að einhverju leyti í Miðtúninu. Einn sunnudaginn voru þeir mættir á lyftingaæfingu, Bubbi og Magister. Þeir voru bara tveir einir á æfingu en þeim svall mikill eldmóður í brjósti. Bubbi var skelþunnur eftir ævintýri næturinnar en var engu að síður í miklu stuði. Áður en átök hófust lýsti Bubbi því yfir við Magister að hann ætlaði að lyfta óheyrilegum þyngdum í framtíðinni og verða bestur í lyftingum og músik..Hæverskum Magister svelgdist á sportdrykknum. Þetta leit út fyrir að ætla verða spennandi æfing. Bubbi byrjaði síðan á léttri upphitun með 50kg í snörun, eða talsvert frá yfirlýsingatölum skömmu áður. Sennilega sökum þynnkunnar, mistókst þessi fyrsta lyfta svo herfilega að lóðin sem voru úr járni skullu niður á annan fót hans. Bubbi rak upp skaðræðisvein sem hræddi allar gamlar kerlingar í nágrenninu. Hann fann gífurlega til og ljóst að stóratáin var í köku, í það minnsta..Lauk þessari æfingu þar með. Bubbi var lítt ferðafær sökum þessa og varð að ráði að Magister skyldi bera hina emjandi hetju heim í Miðtún. Magister tók nú Bubba á bakið og bar hann sem leið lá yfir fjöll og firnindi og allan fótboltavöllinn, og heim til Gvendar. Þetta var með meiri þrekraunum sem Magister hafði lent í...Bubbi var nokkurn tíma að jafna sig á meiðslunum. Á meðan æfði hann sig sem mest í tónlistinni og fór undirbúa útkomu fyrstu plötu sinnar, Ísbjarnablús..Það fór svo að Bubbi lyfti ekki meira fyrr en að mörgum árum liðnum því platan sló í gegn og framhaldið þekkja allir..
Hugleiing: K-E | Heimild Magister Cat | Dags. 1---0-2005



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is