|
|
| HROTUBARÁTTA | Þessi skondna saga gerðist á aflraunamóti erlendis...Það var þegar Ísland fór með lið á The Viking Challenge í Miami 2002 að keppa við Team USA sællra minninga... Þannig var að Grétar Guðmundsson, Big-G og Jón Valgeir sváfu í sama herbergi og voru með sitthvort queen size rúmið ... Það er nú einu sinni þannig með svona yfirmola að þeir eiga það til að hrjóta ansi hátt.. og Big-G er engin undantekning frá reglunni þar. Fyrstu nóttina þá gleymdi Jón að kaupa eyrnatappa og þurfti nokkrum sinnum að biðja kallinn að snúa sér á hliðina svo hann myndi hætta að hrjóta en nóttina eftir þá var Jón kominn með tappa..Og viti menn ...hann þurfti samt að biðja Grétar að snúa sér á hliðina !! Þriðju nóttina var Jón orðinn ansi pirraður á þessum hrotum og gaspraði á kallinn um miðja nótt: "Grétar drullastu til að snúa þér maður, það er ekki hægt að sofa hérna inni þó maður sé með eyrnatappa!" þá rumskaði Big-G e-h og leit upp og sagði: "já !
en Jón hvað viltu að ég snúi mér mikið ? ég ligg á maganum !!!!" Þannig að kraftakarlar hrjóta bara sitjandi hangandi, standandi, liggjandi og bara hvernig sem er, það skiptir ekki máli svo lengi sem þeir sofni bara..!
| | Hugleiing: K-E | Heimild Molaheimur | Dags. 2---1-2004 |
|
|