Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

Vígamóður í vöruskemmu
Kringum árið 2000 átti Ofsinn Völundur Þorbjörnsson risastóra vöruskemmu í Hafnarfirði. Þar bjuggu um skeið m.a. þeir Gunnar Ólafsson sem fékk nafnið Skemmujarlinn á þessum tíma og Egill sterki en það var grútmáttlaus norðmaður sem var einkavinur jarlsins. Einnig var þarna arabi einn sem kallaður var Kalli. Hann var svona létt-terroristalegur náungi sem hafði m.a. verið í Líbanska hernum og starfað sem lífvörður hjá olíufursta í Líbanon og kunni flest fantabrögð. Þessir ólíku herramenn bjuggu í skemmunni sem húsverðir og gæslumenn nokkurra rándýrra eðalvagna af tegundum eins og Cadillac, Jagúar og jafnvel Rolls Royce. Stundum logaði í tunnum í skemmunni til að skapa sérstakt andrúmsloft þegar íbúarnir voru að grilla og skemmta sér innan um glæsivagnana. Þannig mátti segja að skemman væri í sérstökum háklassa. Ekki var mikið spáð í að borga rafmagnsreikninga af skemmunni. Því kom sú stund að hið opinbera ákvað að loka fyrir rafmagnið. Tveir menn frá Rafmagnsveitunni birtust einn daginn og voru hinir vígalegustu. Skemmujarlinn hringdi strax í Ofsann sem sagðist koma sem fyrst. Á meðan beðið var Ofsans litu skemmubúar aðeins betur á komumenn. Annar þeirra var svo venjulegur í útliti að hann er þegar að mestu gleymdur. Um hinn gegnir öðru máli. Það var nokkuð þykkur durgur á miðjum aldri sem bar sig valdsmannslega. Jarlinn þekkti durginn strax en þeir höfðu nokkrum árum fyrr starfað saman sem fangaverðir í Síðumúlafangelsi. Durgur þessi hafði verið yfirfangavörður og var jafnan í yfirfíling. Sagði hann miklar sögur af sjálfum sér. Hann sagði t.d. frá því að í veiðiferðum fyndi hann það glöggt að hann væri í eðli sínu alger drápari...Sumir fanganna fyndu líka inn á það og væri það ástæðan fyrir því að þeir væru alltaf til friðs þegar hann væri á vakt... Þegar Völundur ofsi birtist gekk hann beint að Dráparanum og tók í hann eins og hvolp og hristi hann og skók og spurði: "Hvern djöfulinn viljið þið hingað aumingjar?" Durgurinn gersamlega gleymdi drápseðli sínu í krumlum Ofsans og kom varla orði upp fyrir hræðslu...Hinn náunginn sem var alger mús sagði erindi þeirra. Á meðan Ofsinn hafði snúið sér að Músa notaði Dráparinn tækifærið og hringdi á lögguna úr gemsa sínum. Þegar Ofsinn varð var við símaganginn sló hann Dráparann létt í hausinn þannig að hatturinn flaug af honum út í skemmu og þyrlaði ryki á Rolls Roycinn...Síðan tók Ofsinn gemsann af manninum með gleymda drápseðlið og henti honum í næsta vegg. Upp úr þessu kom löggan og var síðan lokað fyrir rafmagnið undir þeirra vernd. Dráparinn var þá enn svo lafhræddur að hann minntist ekkert á trakteringar Ofsans við sig. Daginn eftir fékk Ofsinn mann til að tengja framhjá í næsta fyrirtæki. Léku því öll ljós í lyndi eftir það hjá skemmubúum eða þar til skemman var seld og þeir fluttu út.
Hugleiing: K-E | Heimild Harði diskur magisters | Dags. 2---1-2004



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is