Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

Mellubjörgunin
Nokkrir íslenskir lyftingamenn höfðu lagst í víking í Danmörku 1982 á Norðurlandamót unglinga í lyftingum. Þarna voru m.a. kappar eins og Baldur Borgþórsson ROTARI, Ingvar Ingvarsson RINGO og Valdimar Runólfsson og fleiri slíkir jaxlar. Það var auðvitað staldrað við í Köpen og næturlífið skoðað. Þeir voru einmitt staddir á einni ískyggilegri hliðargötu hinnar frægu skemmtigötu Istegade eina skuggalega nótt, þegar ljósin voru skær en skuggarnir djúpir og langir... Söguhetjurnar sáu þá á götuhorni tvo durtslega menn vera atast í mellu. Þeir létu dólgslega og stefndi allt í óefni þar sem "daman" gat ekki greinilega losað sig við þá..Þegar þarna var komið sögu voru þeir tveir saman Baldur rotari og Valdi Run en Ingvar veltist um draugfullur einhversstaðar í nágrenninu..Íslendingarnir ákváðu að skerast í leikinn og losa melluna við þessa tvo ófögnuði. Þeir vildu nú ekki berja þá til að byrja með heldur hrekja þá í burtu vinsamlega eða þannig. Þeir gengu þarna að og Rotarinn segir hressilega við gaurana: "Hæ strákar, hvað kostar mellan hérna?" Íslendingarnir fengu hrikalegt augnaráð og annar gauranna svaraði: "Aumingjar eins og þið ættuð bara að fara yfir til Svíþjóðar og fá ykkur mellur á 50 kall!" Við þetta svar fór heldur betur að sjóða á söguhetjum okkar og hinir dönsku gaurar sáu strax sæng sína útbreidda og lögðu á flótta..Stefndu þeir á gistiheimili sem var þarna nærri og okkar menn á eftir..Á hlaupunum kallaði Rotarinn til Valda: " Ég tek þennan til vinstri og þú hinn til hægri"...Gaurarnir náðu að komast inn í andyrri gistiheimilisins og vígbjuggust þar með brotnar flöskur í hönd..Rotarinn kom þar að fyrstur og spyrnti strax hurðinni inn þannig að hún lagðist yfir annan gaurinn sem Baldur buffaði svo áfram þannig að hann varð á augabragði allur að danskri kjötkássu. Hinn gaurinn hentist afturábak úr andyrrinu og Valdi á fleygiferð á eftir. Undan bekkpressu afli Valda féll hann síðan á ofn og rotaðist nokkurn veginn en fékk í viðbót nokkur vel valin högg til öryggis og hreyfðist lítið eftir það. Sigurvegararnir fóru síðan af vettvangi og sáu leigubíl fyrir utan. Einhver maður var í þann mund að fara inn í bílinn en Rotarinn tók hann með það sama og fleygði honum í burtu. Rétt þegar okkar menn voru sestir í bílinn dreif þar að lögreglulið sem umkringdi þá. Förin endaði upp á stöð með viðeigandi yfirheyrslum. Varðstjórinn var hinn vinsamlegasti við íslendingana og sagði að hinir lúbörðu menn væru nokkuð illa farnir en þeir myndu lifa.. Varðstjórinn sagði síðan að gaurar þessir væru talsverðir hverfis-skelfar og íslendingarnir hefðu nánast unnið þarft verk með þessum barsmíðum. Síðan var okkar mönnum sleppt og urðu engir frekari eftirmálar að þessari skrautlegu mellubjörgun. Hermt er að mellan sé nú komin á eftirlaun og segi barnabörnum sínum sögur af íslenskum ofurhetjum..
Hugleiing: K-E | Heimild Magister Cat | Dags. 1---1-2004



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is