|
|
| ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU |
SAGNIR AF ÁRMENNINU
ROLLURAUNIR ofl.sögur.
Stangarmaðurinn Ármann Sigurðsson er mikill jaxl. Hann er harður múrari af gamla skólanum þar sem puð er gleðigjafi. Á yngri árum sínum æfði hann páverinn og keppti á bekkpressumótum. Margar skemmtisögur hafa flogið um hann manna á milli. Frægust er þó sagan um "rolluserðinguna" sem hefur verið lífseig í áranna rás. Hér kemur sanna útgáfan.
Nokkrir félagar með Ármennið í fararbroddi voru á leið á sveitaball nálægt Borgarnesi. Þeir voru saman á bíl og áttu leið framhjá bóndabæ einum. Ármenninu var þá orðið mál svo það var stoppað og hann fór út úr bílnum. Nokkrar rollur voru þarna nálægt. Eftir að Ármennið hafði tekið út á sér trollið, ákveður hann að bregða á leik og segir við strákana: "Á maður ekki bara að taka í eina rollu?"
Í sama mund birtist óvænt bóndinn á bænum og sér einhverja tilburði Ármennisins og taldi þá vera alvöru mikla..Hann kemur hlaupandi að og öskraði: "Láttu rollurnar mínar vera helvítið þitt eða ég kem með haglarann!"
Ármennið forðaði sér upp í bílinn hið snarasta og strákarnir brenndu í burtu. Þannig er nú þessi saga. Það var sem sagt aldrei nein rolluserðing, heldur aðeins gáskafullur leikur ungs graðfola.
ÁBURÐAPOKINN SIGGI
Einu sinni voru Ármennið, Baldvin bekkur og 1-2 aðrir gaurar að rúnta um borgina. Fundu þeir þá út á bryggju heilan áburðapoka. Ármennið tók strax ástfóstri við pokann. Skírði hann "Sigga" á staðnum og tók hann með sér í framsætið á bílnum sem var forláta Chevrolet. Bílstjórinn var lítið hrifinn af þessu uppátæki en varð að beygja sig undir vilja Ármennisins sem sagði "Sigga" vera besta vin sinn. Síðan var farið í nokkrar sjoppur og mætti Ármennið þar með "Sigga" á öxlinni og bað um bland handa vini sínum. Stundum setti Ármennið "Sigga" upp á afgreiðsluborð og sagði hann nausynlega þurfa á pylsu að halda..Þegar leið á kvöldið var farið í 2-3 partý og hafði Ármennið jafnan "Sigga" vin sinn með sér á öxlinni. Að lokum þoldi "Siggi" ekki álagið og fór að leka áburði. Þá var honum hent út í garð og endaði "Siggi" þar viðburðaríka ævi sína, og segir ekki meira af honum.
KYNLÍF VARÐSTJÓRANS
Í eitt skiptið stöðvaði löggan Ármennið á Laugavegs rúntinum vegna þess að hann keyrði Corvettuna á parkljósum. Eitthvað mótmælti Ármennið harðlega og var fluttur ásamt 2 vinum sínum upp á löggustöð til yfirheyrslu og áfengisskoðunnar. Þegar Ármennið reyndist edrú þóttist hann nokkrum órétti beittur og sagði háðslega við lögregluvarðstjórann:
"Ég veit alveg hvað er að þér, þú færð það ekki hjá kellingunni þinni!"
Varðstjórinn varð öskuvondur við þessa ósvífni og stökk á fætur og öskraði : "Í steininn með hann! - "Í steininn með hann!"
Það endaði þó með því að Ármenninu og félögum hans var sleppt og hlógu þeir síðan á kostnað varðstjórans það sem eftur lifði nætur.
"ÁTTU TIL VERJUR?"
Til undirbúnings laugardagsævintýri fóru þeir Ármennið og vinur hans í apótek. Ármennið hafði orðið og setti upp sparisvipinn: " Áttu til verjur?" sagði hann ofur kurteisislega við afgreiðsludömuna.
Hún fór og kom til baka með einhversskonar smokkahlíf til að setja upp á fingur.
Þá missti Ármennið gersamlega sparisvipinn og hálf æpti að dömunni: " Skilurðu það ekki, ég ætla að fá smokka til að ríða með!"
Það er nefnilega það, Ármennið er enginn hvítflibbi með sunnudagstal. Hann er og verður alltaf hinn grófgerði múrari, frískur og flottur.
| | Hugleiing: K-E | Heimild k.elison@mmedia.is | Dags. 0---1-2004 |
|
|