|
|
| Af tvennum nærbuxum |
Á tímabili á árunum 1984-1991 ferðuðust þeir talsvert saman um heiminn í sambandi við páverinn og aflraunir þeir félagar, Jón Páll og Hjalti úrsus.
Oft þurftu þeir því að deila hótelherbergjum saman. Ekki fylgir sögunni hvor hraut meira þótt líklega hafi það nú verið úrsusinn...
Jón Páll sagði þá sögu að eitt sinn þegar svo stóð á hafi hann vaknað upp eina nóttina. Úrsusinn var steinsofandi og hraut blíðlega en það var samt eitthvað sérkennilegt á sveimi..
Þá sá hann það...Nærbuxurnar hans Hjalta sem voru ekki of hreinar, stóðu bókstaflega upp á endann á náttborðinu við hlið hans. Þær virtust hreinlega iða af sjálfstæðu lífi. Jón ætlaði ekki ekki að trúa sínum eigin augum. Skyndilega fóru nærbuxurnar af stað.. þær trítluðu sjálfar upp í rúmið til úrsusar og klæddu sig sjálfar á eigandann..
Jón var svoldinn tíma að melta þessa sjón alla en lagði sig svo aftur. Daginn eftir var hann hreinlega ekki viss hvort þetta hefði verið raunveruleiki eða draumur...
AF HINUM NÆRBUXUNUM
Í Æfingastöðinni að Engihjalla kringum árin 1987-88 æfði þar Magnús nokkur Korntopp. Þetta er ansi yfirgripsmikill náungi í holdum. Á þessum tíma vóg hann um 165-170 kg en er í dag um 200-220 eftir því hvort hann er skitinn eða ekki...Korntoppurinn lyfti nokkuð á þessum árum jafnframt því að vera þyngsti fótboltamaður í heimi..
Fylgdi honum jafnan nokkuð umfangssmikil lykt..bæði þar sem hann var staddur og þar sem hann hafði verið áður..
Baldur Borg rotari, mætti einn daginn á æfingu og fann strax fnyk mikinn í búningsklefanum. Hann aðgætti málið og fann á glámbekk risastórar brúnleitar nærbuxur sem eitt sinn höfðu verið hvítar...Baldur náði í prik og veiddi nærurnar upp og fór með þær fram í æfingasal og auglýsti eftir eiganda þeirra.. Baldur fór síðan aftur inn í búningsklefa með veiðina og lét hana detta ofan í næstu ruslafötu..
Fljótlega á eftir birtist þar herra Korntopp. Hann náði í nærbuxurnar og klæddi sig í þær eins og ekkert væri og fór síðan aftur fram í sal að æfa..
Dagar Korntoppsins í stöðinni urðu ekki mikið lengri eftir þetta.. Hinsvegar mun eigi vitað hvort nærurnar góðu gagnist enn eiganda sínum..
| | Hugleiing: K-E | Heimild Magister | Dags. 7---0-2004 |
|
|