Núna rétt fyrir keppnina Sterkasti maður Íslands 2004 hefur verið að hlaðast upp spenna á meðal yfirmolanna sem þátt munu taka. Á æfingu í Gym 80 fyrir stuttu síðan voru þeir í góðum gír, Kristinn"Boris" og Maggi Ver. Sérstaklega var þó í yfirfíling hinn hrað-breikkandi Boris sem er orðinn helöflugur ásamt því að vera skemmtilegt þrotabú í sjón. Borisinn víkur sér að Verinu og segir í gríni þrunginni alvöru: "Er það satt að þú sért að hopa og verðir ekki með? - Ertu orðinn hræddur um að ég taki þig?" Menn geta svona rétt ímyndað sér hvernig svona tal hefur farið í strongest...Verið leit á hann óræðu en þýðingarmiklu augnaráði og svaraði síðan: "Ég held Boris að þú verðir að fara minnka bætiefna skammtinn þinn, þú ert orðinn veruleikafirrtur!"
Ekki fer sögum af frekari samræðum þeirra molanna þann daginn. Það má vera ljóst að það er ekkert spaug að eiga við Verið í orði fremur en á borði..