Eldri sögur!
 
 
 
 
Forsíða
Listinn
Myndir
Kára vísur
Fréttir
Benni í Danaveldi
Frttasafn
Fanta Shokata
Speki vikunnar
Flengvideó
Viðtalið
Saga mánuðarins
Fyrirspurnir
Þjálfunarhornið
Úrslit móta
Tilurð uppnefna
 
 
 

15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Ein af þjóðsagnapersónum kraftaheimsins á klakanum er Ögmundur Árnason - Ömmi crazy. Þótt hann af mörgum teljist seigur til aflsins er hann þó mun snjallari til orðsins. Þegar hann segir manni sögur, sérstaklega af sjálfum sér fer hann sannarlega á flug. Maður talar nú ekki um ef hann er mildur en ef hann er búinn að vera eitthvað í þurrkví þá er honum stirðara um stef. Fyrir nokkrum árum náði Magister honum á gott eintal. - Hér á eftir fer brot af því besta frá þeirri sagnastund. Á þeim tíma starfaði Ömmi sem nuddari við Þjóðleikhúsið og nuddaði þá aðallega fagrar ballerínur. Var ekki laust við að ýmsir öfunduðu hann af þeim starfa. Ömmi vildi ekki gefa mikið út á ítökur í því sambandi en sagðist eiga þar margar vænar stundir... "Allt frá minni fyrstu snertingu eru þær eins og smjör við sálu mína og herbergið fyllist af sterkum ilmi er stafar frá dýpsta leyndardómi líkama þeirra...!" mælti Ömmi dreyminn á svip er hann rifjaði þetta upp...svo bætti hann við:" Í rauninni verða þær svo graðar að þessi kynferðislega spenna gerir manni erfitt fyrir."..Svo fórum við ekki meira út í þá sálma. Um nokkurra ára skeið bjó Ömmi í Þýskalandi.Vann hann í verksmiðju í lítilli iðnaðarborg nálægt Munchen. Eina fríhelgina datt Ömmi í það með öllu tilheyrandi. Hann bjó þá upp í risi í gömlum leiguhjalli þar sem gengið var upp brattan og þröngan stiga. Var þarna gleðskapur mikill. Nágrannar hringdu að lokum á lögreglu til að koma skikkan á hávaðann. Tvær löggur komu á vettvang og reyndu að fá Ömma til að lækka í græjunum lagið: "Stína var lítil stúlka í sveit, stórlega biluð og svolítið feit" Ömmi brást hinn versti við og endaði það með því að hann grýtti báðum löggunum niður stigann..Þegar löggurnar höfðu skreiðst á fætur niðri lögðu þær ekki í frekari átök en þess í stað kölluðu þær eftir liðsauka.. Fljótlega komu 5-6 löggur í viðbót í húsið og lögðu til atlögu við húsráðanda. Uppi á skörinni var Ömmi hinn vígalegasti í stuttermabol með bysepana út um allt. Löggurnar áttu í mesta basli með að komast að honum því stiginn var það þröngur. Ömmi nýtti sér hina stöðulegu yfirburði vígisins og grýtti löggunum aftur niður stigann einni eftir annarri..Enn bættust fleiri löggur við árásar herinn og allar fóru þær sömu leið niður..Talið er að Ömmi hafi þarna hlaðið einum 15 löggum eða svo.. Að endingu voru honum settir úrslitakostir..uppgjöf þar sem hann fengi að fara með reisn í steininn eða Víkingasveit borgarinnar yrði sótt.. Ömmi neyddist þar til að sættast á uppgjöf . Naut hann síðan mikillar virðingar í steininum allan næsta dag. Það sem flýtti fyrir heimferð Ömma frá Þýskalandi voru einkum tveir atburðir. Annar var fremur hrikalegt slys sem hann var vitni að í vinnunni. Einn vinnufélaga hans var að aka opnum lyftara og missti stjórn á honum í beygju. Fór lyftarinn á hliðina á talsverðri ferð og dróst ökumaðurinn fastur í sætinu meðfram götunni þar sem lyftarinn rann áfram stjórnlaust. Skyndilega rakst lyftarinn á ójöfnu og skarst höfuð mannsins alveg af búknum og rúllaði blóðugt eftir götunni. Hinn atburðurinn var sá að verkstjóri Ömma hafði sent hann eitthvað með pakka. Vildi svo til að Ömmi fór með pakkann á rangan stað og þegar hann kom til baka varð verkstjórinn hinn æstasti. Bölvaði og ragnaði á þýsku og þreif síðan með lúkunni í annað eyrað á Ömma og ætlaði að draga hann inn á kontor á eintal. Ömmi er auðvitað íslendingur kominn af víkingum og lét nú ekki fara svona með sig..Hann snérist á punktinum og gaf verkstjóranum rokna kjaftshögg þannig að hann sentist á ruslatunnu og þaðan í gólfið.. Ekki þurfti Ömmi að vinna meira þann daginn. Fljótlega eftir þetta fékk Ömmi nóg af þessari vinnu og skömmu síðar var hann kominn heim á skerið. Hann er nú hinn brattasti og sífellt að hugsa um 200 á bekk...
Hugleiing: K-E (Magister cat) | Heimild | Dags. 3---0-2004



Eldri sögur!
Dags. 3---0-2013
Hver var flæðimolinn?
Dags. 0---1-2006
Bænheitur berserkur
Dags. 0---1-2006
Ekkert mál fyrir Jón Pál!
Dags. 9---0-2006
Sprittlampinn í Jakabóli
Dags. 8---0-2006
Fjórði maðurinn
Dags. 7---0-2006
Pós down á Pravda
Dags. 6---0-2006
Hótel Varðborg rústað
Dags. 5---0-2006
TIPPATOGUN-LÍTIL SAGA ÚR GYM 80
Dags. 4---0-2006
MARTRÖÐIN Á GRAND HÓTEL
Dags. 3---0-2006
Jón Páll og rjómaísinn
Dags. 3---0-2006
"ER BARA EKKI HÆGT AÐ SKERA Á ÞETTA HELVÍTI?"
Dags. 2---0-2006
Vígreifur Hæstaréttarlögmaður
Dags. 2---1-2005
Að skjóta spörfugl með fallbyssu.
Dags. 2---1-2005
"ÉG SKAL DREPA HELVÍTIS KÖTTINN!"
Dags. 1---1-2005
SKÍTBEYGJA Á ÍTALÍU
Dags. 0---1-2005
Betra er að vera stuttur og stinnur
Dags. 9---0-2005
Ofurátök á Indlandi
Dags. 8---0-2005
Dýrin í skóginum
Dags. 7---0-2005
-Viltu ekki frekar berja einhvern verðugan?
Dags. 7---0-2005
JÓN BÓNDI KENNIR AUSTFJARÐATRÖLLINU
Dags. 6---0-2005
VÍGALEG JAFNHÖTTUN
Dags. 5---0-2005
HETJUSAGA SVEITAMOLA
Dags. 4---0-2005
SAGAN AF FUNDUM MÍNUM VIÐ KAZ eftir "Ofsann" Völund Þorbjörnsson
Dags. 3---0-2005
JÓN PÁLL ROTAR KRAFTAJÖTUNN
Dags. 3---0-2005
Otradalsgreifinn og aðdáandinn
Dags. 2---0-2005
SÍÐASTA LYFTINGAÆFING BUBBA MORTHENS
Dags. 1---0-2005
HROTUBARÁTTA
Dags. 2---1-2004
Vígamóður í vöruskemmu
Dags. 2---1-2004
Mellubjörgunin
Dags. 1---1-2004
ROLLURAUNIR - SAGNIR AF ÁRMENNINU
Dags. 0---1-2004
Stóðhestar í sturtu
Dags. 9---0-2004
ÖLDUNGANÍÐINGURINN
Dags. 8---0-2004
Af tvennum nærbuxum
Dags. 7---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
Molasamræður
Dags. 6---0-2004
"ÞÚ ERT EINS OG HRÍSLA Í HÖNDUNUM Á GÍSLA!"
Dags. 5---0-2004
-EF HANN HEFÐI MJAÐMIRNAR ÞÍNAR...
Dags. 4---0-2004
15 LÖGGUM HLAÐIÐ. - Sagnir af Ömma crazy
Dags. 3---0-2004
HNÉBEYGJA Í ÆÐRA VELDI - Kremsprengjan
Dags. 2---0-2004
Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið
Dags. 2---0-2004
Gufubaðsmolar á Laugum
Dags. 1---0-2004
Landkynningin slettir úr klaufunum
Dags. 2---1-2003
Er það satt að þú sért kallaður Benni beikon?
Dags. 1---1-2003

 
© Net vefsmíðar// 2002 //arnargu@mi.is