|
|
| Saga fyrir svefninn-Úlfurinn og sængurverið | Það eru vissir menn sem verða nánast aldrei kjaftstopp.Þar á meðal má nefna Hjalta Úrsus,Arnar logg og Magga Ver og e.t.v. nokkra fleiri.
Svo er annar hópur manna sem getur vel svarað fyrir sig í mögnuðum stíl þegar á þarf að halda.Skúli Óskarsson ,smiðjusvín er einn af þeim og einnig má telja Björgúlf Stefánsson, vreskí-wolf í þeim ágæta hópi.
Á páver æfingu einu sinni fyrir nokkrum árum síðan,líklega var það í Gym 80, var einhver spenna á milli Magga Vers og Úlfsins.Glottið víðfræga var á vörum Versins ásamt hæðnislegum athugasemdum sem beint var að Úlfinum í húmorískum anda.
Eitthvað fór þetta nú misvel í Hr.Vreskí-wolf sem missti að lokum þolinmæðina,stappaði í gólfið og hálf gaggaði yfir æfingasalinn svo heyrðist um allt:-ÞÚ ÞARNA MAGNÚS VER,SÆNGURVER! ÞÚ ERT EKKERT ANNAÐ EN UPPBÚIÐ RÆFILS KODDAVER!
-Maður sá að Verinu brá við þessi ræðuhöld en hann sagði ekkert-gersamlega kjaftstopp..Síðan læddi hann fram smábrosi og fljótlega voru þeir félagar búnir að sættast og hafa verið í bræðralagi síðan.Svona á sport að vera...! | | Hugleiing: K-E ( Magister Cat) | Heimild Minni Magisters | Dags. 2---0-2004 |
|
|