|
|
| Landkynningin slettir úr klaufunum | Eitt af hinum skemmtilegri viðurnefnum manna í sportinu er þannig tilkomið að árið 1998 fór fram Evrópumótið í páver í bænum Sotkamo í Finnlandi.
Þarna kepptu tveir íslendingar þeir Auðunn Jónsson og Gunnar Ólafsson skemmujarl. Jens Fylkiss.bauð sig einnig fram sem aðstoðarmaður.Fyrir ferðina barst það fljótlega í tal í Steve Gym að Guðmundur Guðmundss.hefði líka fullan hug á að fara sem aðstoðarmaður Jarlsins. Þegar Hörður Magnússon,Ölli vinur frétti þetta sagði hann þessa margfrægu setningu: - Á hann nú að fara með sem landkynning?
Allir þeir sem þekkja til Gumma vita að hann er nefnilega miklu meira en hrikalegur með víni... Uppfrá þessu hefur hann verið kallaður:Landkynningin og stóð hann vel undir nafni í þessari för...
Eftir mótið þar sem Auðunn varð Evrópumeistari var m.a. haldið mikið partý í einu af húsunum sem keppendur höfðu til afnota. Fljótlega í partýinu varð Landkynningin skemmtilega fullur að eigin áliti og var með allsskonar stæla við útlendingana jafnt léttmola sem yfirmola...Að lokum missti einn molinn úr hópi svíanna þolinmæðina og snéri sér að Auðunni og sagði kurteislega:-Þessi íslendingur hefur allt til að bera sem við höfum heyrt hvernig fullur íslendingur getur verstur orðið..svo bætti hann við:- Er þér sama þótt ég roti hann?
Auðunn bað hann aðeins að bíða með það og sjötluðust málin þannig að Gumma var hent út á eins vinsamlegan hátt og hægt var.
Fór ekki sögum af Gumma þar til ´seint um nóttina að hann skreiðist heim úr rauða hverfinu en hann bjó í einu húsanna með Gunnari skemmujarli sem var farinn í háttinn.Landkynningin setur með það sama allar tónlistargræjur í botn og öskrar og veinar.Jarlinn reyndi að róa kappann niður en það tókst ekki...
Fór svo að vinirnir lentu í hörkuslagsmálum og eftir mikinn innanhúss bardaga barst leikurinn út í garð hússins þar sem snjór og frost réðu ríkjum..Lauk þessu þannig að Jarlinn hafði Gumma undir í stórum snjóskafl og lá hinn sigraði þar óvígur eftir en sigurvegarinn fór aftur inn og sofnaði vært langt fram á dag.
Eftir að heim til klakans var komið urðu ekki miklir kærleikar með þeim vinum í nokkur ár...þangað til dag einn að kona Gumma hringir í Jarlinn og bauð honum fría ferð á leik með Manch.United á Old Trafford í Manchester ef hann myndi passa upp á Landkynningunasína í ferðinni...Jarlinn sló til og allt gekk vel og báðir komu heilir heim aftur en lítið hafa þeir talast við síðan, hvernig sem á því stendur og er kannski efni í aðra sögu....- | | Hugleiing: Kári magister | Heimild | Dags. 2---1-2003 |
|
|